Bókmenntahátíð í Reykjavík fagnar 40 árum með fjölbreyttri og spennandi dagskrá

Menning og listir

Heiða Björg Hilmisdóttir ávarpar gesti á opnunarhátíð Bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík Valgarður Gíslason
Heiða Björg borgarstjóri flytur ræðu fyrir hóp fólks í Safnahúsinu

Frá 1985 hefur Bókmenntahátíðin í Reykjavík verið hátíð lesenda og höfunda og mikilvægur vettvangur samtala um bókmenntir, samfélagsleg málefni og ýmsa anga mannlífs. Sem fyrr er dagskráin fjölbreytt og spennandi og ókeypis inn á alla viðburði. 

Á hátíðinni sem stendur yfir þar til á sunnudag gefst einstakt tækifæri til að heyra sögur og frásagnir heimsþekktra rithöfunda sem hingað eru komnir til þess að taka þátt í þessari miklu veislu bókaunnenda. Á meðal höfunda sem taka þátt í ár má nefna Claire Keegan sem nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi, nóbelsverðlaunahafann Abdulrazak Gurnah og ljóðskáldið og Andrev Walden. Öll eru þau fáanleg í íslenskum þýðingum.

Styrkir alþjóðleg tengsl

„Bókmenntahátíð í Reykjavík hefur gegnt lykilhlutverki í að styrkja alþjóðleg tengsl, bæði með því að færa heiminn hingað heim og með því að kynna íslenskar bókmenntir á alþjóðlegum vettvangi,” sagði Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri á opnunarhátíðinni á miðvikudagskvöld. Hún sagði hátíðina án efa átt stóran þátt í að Reykjavík varð Bókmenntaborg UNESCO árið 2011, einungis fimmta borgin til að hljóta þann titil, og sú fyrsta utan ensks málsvæðis.

„Í dag eru bókmenntaborgir UNESCO 53 talsins í 39 löndum. Þar stendur Reykjavík styrkum fótum sem ein af aðaldriffjöðrum í samstarfi og samtali þessa mikilvæga tengslanets.​”

Spennandi dagskrá næstu daga

Fólk er hvatt til að njóta þess sem hátíðin hefur upp á bjóða næstu dag: samtöl á sviði, upplestrar, kvikmyndasýning, ljóðalestur, fótboltaleikur, bókaball og fleira skemmtilegt. Hægt er að kynna sér dagskrána á vefsíðu hátíðarinnar bokmenntahatid.is.