Umfangsmikið samráð í stefnumótun um málefni eldra fólks
Fjöldi fólks tók þátt í stórum samráðsfundi sem haldinn var í tengslum við mótun stefnu í málefnum eldra fólks í Reykjavík í vikunni. Lykilatriði við gerð stefnunnar er umfangsmikið samráð við eldra fólk og hina ýmsu hagaðila.
Reykjavík hefur allt frá árinu 2015 tekið þátt í alheimsneti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um aldursvænar borgir. Nú taka 1542 borgir og samfélög í 51 landi þátt í verkefninu. Á fundinum, sem haldinn var í félagsmiðstöðinni Borgum í Grafarvogi, var unnið í hópum út frá átta málefnasviðum WHO um aldursvænar sem sérstaklega er horft til við mótun stefnunnar.
Ný stefna á jafnframt að endurspegla og hafa samhljóm við áherslur í öðrum stefnum Reykjavíkurborgar er lúta að velferð borgarbúa.
Einar Þorsteinsson borgarstjóri ávarpaði fundinn en á hann mættu fulltrúar eldra fólks, hagaðila, auk fagfólks og sérfræðinga af öllum sviðum Reykjavíkurborgar. Fjölbreytni þátttakenda var lykilatriði en með hliðsjón af málefnasviðunum er ljóst að stefnumörkunin þarf að hvíla á aðkomu fjölbreytts hóps fólks.
Málefnasviðin átta eru:
- Útisvæði og byggingar
- Samgöngur, húsnæði
- Félagsleg þátttaka
- Virðing og félagsleg inngilding
- Virk samfélagsþátttaka og atvinnumöguleikar
- Samskipti og upplýsingar
- Samfélag og heilbrigði
Það er velferðarráð Reykjavíkurborgar sem tók ákvörðun um að vinna nýja stefnu í málefnum eldra fólks en fyrri stefna gilti til ársins 2022. Gert er ráð fyrir að ný stefna verði tilbúin í vor og gildi til ársins 2035. Ráðið skipaði stýrihóp 1. nóvember 2022 en í honum eru kjörnir fulltrúar sem standa að umfangsmiklu samráði við aðila, bæði innan borgar og utan, auk fulltrúa eldra fólks í Reykjavík.