Sjö lömb í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Ærin Hetta með lömbin sín þrjú, tvær gimbrar og hrút sem er í miðjunni.
Sauðburður í Fjölskyldu og húsdýragarðinum

Á einni viku hafa 7 lömb litið dagsins ljós í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Tvær ær voru tvílembdar og ein þrílembd.

Sauðburður hófst í þann 10.maí síðastliðinn þegar ærin Dokka bar lambakóngi og lambadrottningu. Það eru fyrstu lömb á hverjum bæ sem fá þessa konunglegu titla. 

Þann 13.maí bar svo ærin Kylja tveimur gimbrum og að kvöldi 14.maí bar ærin Hetta þremur lömbum. Lömbin, tvær gimbrar og einn hrútur, eru stór af þrílembingum að vera. Faðir lambanna er hrúturinn Jökull sem er sallarólegur yfir viðbótinni í sauðfjárhjörðina.

Ærin Dokka með lambakónginn og lambadrottninguna
Ærin Dokka með lömbin sín tvö, lambadrottningu og lambakóng.

 

Um leið og ær hefur borið lambi sínu eða lömbum í heiminn tekur hún við að kara afkvæmin. Það þýðir að hún sleikir slím og blóð af þeim og setur þar með lykt sína á lömbin. Ærin þekkir svo í framhaldinu lömb sín á lyktinni. Lamb er 3-4 kg að þyngd þegar það kemur í heiminn eða álíka þungt og nýfætt barn. 

Móðurhlutverkið fer Dokku, Kylju og Hettu vel en fyrstu dagana eftir burð dvelja þær á afmörkuðu svæði í kindastíunni á meðan þær mynda góð og sterk tengsl við lömbin sín. Kind gengur með lamb í 21 viku, það er í tæpa fimm mánuði og getur verið einlembd, tvílembd eða þrílembd.

Til fróðleiks má bæta því við að íslenska sauðkindin hefur verið á Íslandi frá landnámi og líklegast er að hún sé komin af norður-evrópska stuttrófukyninu.

Líkt og alltaf biðjum við gesti að sýna ungviðinu sem og öðrum íbúum garðsins fyllstu tillitssemi.