Samstarf um þróun lóðar á Krókhálsi
Reykjavíkurborg hefur auglýst eftir samstarfsaðilum um þróun á atvinnulóðinni Krókháls 20-22, en þar er í dag heimilt að byggja 4 – 5 hæða hús sem í heild væru rúmlega níu þúsund fermetrar.
Hugmyndir um nýtingu lóðar
Kallað er eftir hugmyndum að nýtingu lóðarinnar í þeim tilgangi að tryggja að í nýju skipulagi verði til staðar lóðir sem henta áhugasömum fyrirtækjum. Ekki er því um hefðbundna úthlutun að ræða heldur er leitað eftir upplýsingum um fyrirhugaða starfsemi á lóðinni, áætlað byggingarmagn og fleiri þætti sem nýtast við að meta vænlegustu framtíðarverkefnin. Frestur er til kl. 14.00 þann 1. febrúar 2024.
Það fyrirtæki sem valið verður til samstarfs stendur til boða að fá lóðarvilyrði til tveggja ára og hefur þann tíma til að vinna nýtt skipulag á lóðinni í takt við sínar hugmyndir. Greitt er fyrir lóðarvilyrðið árlega sem miðast við 10% af heildargreiðslu byggingarréttarins.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að ákveða hvort hugmyndir sem berast verði kveikja að samstarfi eða samningum um lóðina og þá um leið að þær verði hluti af forsendum fyrirhugaðs skipulags.
Nánari upplýsingar:
Auglýsing á vef Reykjavíkurborgar: Atvinnulóð við Krókháls – leit að samstarfsaðilum.