Becky E. Forsythe hefur verið valin til að gegna rannsóknarstöðu innan Listasafns Reykjavíkur, en markmiðiðið er að rannsaka hlut kvenna í íslenskri listasögu. Alls bárust átta áhugaverðar umsóknir um stöðuna sem var auglýst síðasta vetur.
Verkefnið er unnið í samstarfi við listfræði í Háskóla Íslands og nýtur öndvegisstyrkjar Safnaráðs til þriggja ára. Hann var fyrst veittur árið 2022 þegar Sigrún Inga Hrólfsdóttir var valin til að rannsaka listferil Hildar Hákonardóttur og aftur 2023 þegar Aðalheiður Guðmundsdóttir fékk stöðuna og rannsakar nú líf og list Borghildar Óskarsdóttur. Var þetta því í þriðja og síðasta sinn sem staðan var auglýst, en sérstakt fagráð skipað fulltrúum safnsins og Háskóla Íslands valdi úr innsendum tillögum.
Tillaga Beckyar um rannsókn og sýningu ber heitið „Listakonur sem ryðja sína eigin braut“, þar sem hún hyggst beina sjónum sínum að listakonum og hópum listakvenna sem voru mótandi hreyfiafl í íslensku listalífi á síðari hluta 20. aldar. Rannsókninni lýkur að vanda með sýningu á Kjarvalsstöðum í byrjun árs 2025 auk útgáfu veglegar bókar.
Fjölbreytt störf á sviði myndlistar
Becky er sýningarstjóri, ritstjóri, textahöfundur og rannsakandi sem hefur sinnt fjölbreyttum störfum á sviði myndlistar hér á landi. Hún lauk BFA-gráðu í myndlist frá York-háskóla í Toronto árið 2007 og stundaði svo framhaldsnám í safnafræðum og sýningarstjórn við Ontario College of Art and Design-háskóla og Georgian College í Ontario þaðan sem hún útskrifaðist árið 2014. Becky hefur sýningarstýrt nokkrum fjölda sýninga og unnið að öðrum verkefnum, rannsóknum og útgáfum í söfnum, galleríum og listamannareknum rýmum. Hún hefur sinnt tímabundnum verkefnum hjá Listasafni Reykjavíkur og sinnt hlutverki leiðbeinanda í meistaranámi myndlistardeildar Listaháskóla Íslands. Hún er einnig í ritstjórnarteymi tímaritsins Myndlist á Íslandi. Frá 2014-2018 gegndi Becky stöðu safneignarfulltrúa Nýlistasafnsins í Reykjavík.