Opið hús í Grafarvogslaug í lok vitundarvakningar um öryggi í sundlaugum
Vitundarvakningu um öryggi í sundlaugum, í nafni Guðna Péturs Guðnasonar,starfsmanns velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sem lést í Sundhöll Reykjavíkur 21. janúar 2021, lýkur með opnu húsi í Grafarvogslaug á morgun laugardaginn 27.janúar klukkan 14-16.
Vitundarvakningin stendur yfir í viku og hófst með opnu húsi í Sundhöll Reykjavíkur síðastliðinn sunnudag þar sem sundlaugargestum var boðið að kynna sér og prófa öryggisbúnað sem notaður er við björgun í sundlaugum.
Öryggisvikan í sundlaugunum sem fylgdi í kjölfarið er haldin með það að markmiði að efla starfsfólk í starfi þegar kemur að öryggismálum. Boðið var upp á kynningar og fyrirlestra auk ráðstefnu. Torgið nýtt fræðslukerfi var kynnt starfsfólki en þar er að finna nýja „námslínu“ fyrir laugarverði þar sem áhersla er lögð á öryggi og gæði vatns.
Öryggisverðir og öryggistrúnaðarmenn hjá Reykjavíkurborg sóttu ráðstefnu þar sem fjallað var um öryggi starfsfólks, en 230 manns frá öllum sviðum borgarinnar mættu á ráðstefnuna sem haldin var á Grand Hótel.
Öryggisvikunni lýkur með opnu húsi í Grafarvogslaug, á morgun laugardaginn 27. janúar kl. 14-16, þar sem gestir geta prófað öryggisbúnað sem notaður er við björgun í sundlaugum undir handleiðslu Pálma Hlöðverssonar slökkviliðs og sjúkraflutningamanns.
Þó öryggisviku sé að ljúka formlega mun starfsfólk sundlauga halda áfram að leggja sitt af mörkum við að tryggja öryggi gesta sem heimsækja laugarnar í Reykjavík.