
Á morgun, laugardaginn 16. nóvember klukkan 17:00, verður kveikt á ljósunum á jólakettinum á Lækjartorgi. Grýla, Leppalúði og Lúðrasveitin Svanur verða á svæðinu til að skapa notalega og skemmtilega jólastemmningu og öll eru velkomin á viðburðinn!
Kötturinn er um fimm metrar á hæð, sex metrar á breidd og er lýstur upp með 6500 led ljósum. Jólakötturinn var settur upp í fyrsta sinn árið 2018 og hefur ávallt vakið mikla athygli gesta og gangandi á torginu. Hönnun jólakattarins er samstarf Reykjavíkurborgar, MK-illumination í Austurríki og fyrirtækisins Garðlist.
Jólakötturinn er ein af best þekktu íslensku jólavættunum. Hann er gríðarstór, eins og segir í löngu kvæði Jóhannesar úr Kötlum um þessa óvætt sem er sögð leggja sér þá til munns sem ekki fá nýja flík fyrir jólin. Það kallast að fara í jólaköttinn og eins gott fyrir bæði börn og fullorðna að forðast þau grimmu örlög, til dæmis með því að vinna sér inn fyrir þótt ekki væri nema einu sokkapari. Jólakötturinn minnir á svipaðar dýravættir á öðrum Norðurlöndum og á ættir að rekja til þeirra, svo sem jólahafursins sem margir Íslendingar þekkja líka.
Þið kannist við jólaköttinn,
– sá köttur var gríðarstór.
Fólk vissi ekki hvaðan hann kom
eða hvert hann fór.
Hann glennti upp glyrnurnar sínar,
glóandi báðar tvær.
– Það var ekki heiglum hent
að horfa í þær.
Í dag er því oft haldið fram að jólakötturinn sé heimilisdýr Grýlu og Leppalúða en ómögulegt er að segja hvort hann eigi í raun heima hjá þeim eða hvaðan hann eiginlega kemur. Hitt er víst að við getum öll hjálpast að við að tryggja að enginn þurfi að fara í gin kisu, ef hún er þá í raun og veru til. Hvað sem um það má segja lifir hún allavega góðu lífi í þjóðsögum og kvæðum sem munu vonandi halda áfram að skemmta okkur – og hræða – um ókomna framtíð.
