Ókeypis molta til íbúa í Reykjavík

Teikning af manni með skóflu og hundi.

Íbúum stendur til boða að fá moltu án endurgjalds til 5. júní eða á meðan birgðir endast. Íbúar hafa staðið stórvel að flokkun á matarleifum og eiga mikið hrós skilið fyrir! Búið er að setja gáma með moltu á sjö stöðum í Reykjavík þar sem íbúar geta sótt sér moltu eftir þörfum.

Hvar verða gámarnir?

  • Við Klambratún, á bílaplani við Flókagötu. 
  • Laugardalslaug, á bak við stúkuna, við  Sundlaugaveg.
  • Spönginni
  • Við Breiðholtslaug
  • Selásbraut við Norðurás
  • Kjalarnes, vestan við hverfastöðina
  • Þjóðhildarstíg

Einnig verður hægt að fá moltu á endurvinnslustöðvum SORPU við Breiðhellu, Sævarhöfða og Ánanaust.

Um moltuna

  • Aðeins til notkunar utandyra.
  • Af henni getur komið lykt.
  • Sterk og æskilegt að blanda henni við aðra mold fyrir notkun.
  • Framleidd í samræmi við starfsleyfi Matvælastofnunar og skráð sem lífrænn áburður.

Takk fyrir að flokka!