Kvennaathvarfið fær hæsta styrk velferðarráðs í ár
Á hverju ári veitir velferðarráð hagsmuna- og félagasamtökum styrki úr borgarsjóði, til verkefna á sviði velferðarmála. Tilkynnt var í dag hvaða félög hljóta styrkina fyrir árið 2024. Kvennaathvarfið fær 12,5 milljónir á ári með þjónustusamningi til þriggja ára. Hæsta þjónustusamninginn til eins árs hlýtur Bjarkarhlíð, eða fimm milljónir króna.
Forsvarsfólk félaganna var viðstatt hátíðlega athöfn í Tjarnarsal Ráðhússins í dag, þegar velferðarráð veitti styrkina. Alls bárust 48 umsóknir um styrki þetta árið. Styrkjanefnd mat umsóknirnar út frá átta þáttum og gaf umsóknunum stig í samræmi við það en mikilvægt þykir að verkefnin falli að stefnu og áherslum ráðsins.
Fimm samtök fengu almennan styrk, samtals að upphæð 2.550.000 króna, sjö fengu þjónustusamning til eins árs að upphæð 17.000.000 króna og Kvennaathvarfið fékk sem fyrr segir þjónustusamningum til þriggja ára að upphæð 12.500.000 á ári.
Veita konum og börnum þeirra skjól, stuðning og ráðgjöf
Þjónustusamningurinn við Kvennaathvarfið er gerður til að styðja við það hlutverk samtakanna að veita konum og börnum sem þurfa að yfirgefa heimili sín vegna ofbeldis húsaskjól, ráðgjöf og stuðning. Þar geta konur sem búa við ofbeldi einnig fengið ráðgjöf, stuðning og viðtöl, án þess að til dvalar í Kvennaathvarfinu komi. Þá fá konur sem búa í áfangaheimili Kvennaathvarfsins jafnframt ráðgjöf og stuðning eftir dvöl í neyðarathvarfinu.
Í Kvennaathvarfinu starfar meðal annars sálfræðingur með mikla reynslu úr barnaverndarstarfi, sem veitir börnum viðtöl og hugar að þörfum þeirra fyrir frekari þjónustu. Þar geta allar konur sem ekki eru íslenskumælandi fengið túlkaþjónustu. Þá er fræðsla mikilvægur partur af starfinu en í Kvennaathvarfinu starfar fræðslustýra sem fer í skóla, stofnanir og fyrirtæki með fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum.
Hér má sjá lista yfir alla styrkina:
Almennir samningar:
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – 200.000 krónur
Einhverfusamtökin – 800.000 krónur
Hola – félag spænskumælandi á Íslandi, 800.000 krónur
Reiðhjólabændur – 500.000 krónur
Vinaskákfélagið – 250.000 krónur
Þjónustusamningar til eins árs, 2024:
Afstaða til ábyrgðar – 4.000.000 króna
Bjarkarhlíð – 5.000.000 króna
Kraftur, stuðningsfélag – 1.000.000 króna
Okkar heimur – 2.000.000 króna
Píeta samtökin – 1.500.000 króna
Sjónarhóll ses. – 2.500.000 króna
Spörvar líknarfélag – 1.000.000 króna
Þjónustusamningur til þriggja ára, 2024–2026:
Samtök um kvennaathvarf – 12.500.000 króna á ári í þrjú ár.