Dai Phat Trading ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Thai green tea / Green Tea mix vegna óleyfilegs aukefnis í vöru.
Ástæða innköllunar
Óleyfilegt aukefni í vöru.
Hver er hættan?
Engin hætta tilgreind.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
Vöruheiti: Thai green tea / Green tea mix
Geymsluþol: Best fyrir: 15.01.2026
Nettómagn: 200g
Framleiðandi: Cha Tra Mue
Framleiðsluland: Taíland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Dai Phat, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
Dreifing
Viðskiptavinir
Leiðbeiningar til neytenda
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.