Icepharma hf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum MUNA Múslí spelt með trönuberjum.
Ástæða innköllunar:
Við reglubundið eftirlit hjá framleiðanda mældist sveppaeitrið okratoxín A yfir mörkum í rúsínum en þær eru ein af hráefnum vörunnar.
Hver er hættan?
Matvæli sem innihalda okratoxín A yfir mörkum eru óörugg til neyslu.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: MUNA
Vöruheiti: Múslí spelt með trönuberjum
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31.01.2025
Lotunúmer: BN52441
Nettómagn: 500 g
Framleiðandi: Horst Bode Import-Export GmbH (Bode Naturkost)
Framleiðsluland: Þýskaland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Icepharma hf., Lynghálsi 13, 110 Reykjavík.
Dreifing:
Nettó, Þín Verslun-Kassinn, Melabúðin, Kjörbúðin, Krambúðin. Iceland, Fjarðarkaup, Hlíðarkaup.
Leiðbeiningar til neytenda:
Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni til verslunarinnar þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um innköllun:
Nánari upplýsingar veitir Berglind Erna Þórðardóttir rekstrarstjóri á heilsusviði Icepharma í síma 540 8071 eða með tölvupósti á netfangið berglind@icepharma.is.