Íbúafundur um Elliðaárdal 22. maí

Elliðaárdalur

Áætlun um niðurlagningu Elliðaárvirkjunar og skipulaglýsing var kynnt fyrir íbúum á fundi 22. maí kl. 17:00-18:30. Tilgangur með gerð skipulagslýsingar er að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum þess. Lýsingin er komin í skipulagsgátt.

Reykjavíkurborg og Orkuveitan hafa gert með sér samkomulag um hvernig Elliðaárdalnum verður skilað til borgarinnar. Einnig hefur verið samið við Veitur um brúarsmíð og eflingu umhverfisverndar í dalanum.

Orkuveitan mun áfram reka áningar- og fræðslustaðinn Elliðaárstöð í húsunum við Rafstöðina en í samkomulagi við Reykjavíkurborga er meðal annars kveðið á um hvernig staðið verður að niðurlagningu annarra raforkumannvirkja, sem öll eru friðuð. Þá skilar Orkuveitan vatnsréttindum, þar með talið veiðirétti, til Reykjavíkurborgar ásamt tækjum og mannvirkjum tengdum veiðinytjum og rannsóknum þeim tengdum til eignar og rekstrar, þar með talið laxateljara og veiðihúsi.

Íbúafundur á veitingastaðnum Á Bístró

Raforkuframleiðslu úr Elliðaánum er með öðrum orðum lokið. Íbúum og aðdáendum dalsins var boðið til kynningarfundar Á Bístró við Elliðaárstöð, miðvikudaginn 22. maí um það sem framundan er. Þar á meðal eru breytingar á deiliskipulagi og breytingar á mannvirkjum. Fjallað var um nýtt hlutverk Árbæjarstíflu sem aðgengilega tenging yfir dalinn ásamt mögulegum dvalar- og áningastöðum. Fundurinn var vel sóttur.

Dagskrá:

Skipulagslýsing í auglýsingu

Skipulagslýsingin er nú í auglýsingu í rúmlega 4 vikur en markmiðið með deiliskipulagsbreytingunni er að uppfæra deiliskipulag fyrir Elliðaárdalinn þar sem Árbæjarlónið verður ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir eru endurheimtir. Lýsingin er komin í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar þar sem hægt er að senda inn athugasemdir. Óskað er eftir að ábendingar/umsagnir berist eigi síðar en 28. júní 2024 í gegnum þessa gátt. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar skipulag@reykjavik.is.