Götulokanir á Þorláksmessu 2024
Stór hluti Kvosarinnar, Laugavegar og nærliggjandi götum verður lokað fyrir akandi umferð á Þorláksmessu, 23. desember.
Lokanirnar eru í samráði við Lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu og verða þær í gildi kl. 14:00–00:00.
Aðeins verður hægt að komast út af svæðinu um eftirfarandi gatnamót:
- Barónsstíg við Laugaveg
- Þingholtsstræti við Bankastræti
- Hverfisgötu við Ingólfsstræti
- Hverfisgötu við Frakkastíg
- Pósthússtræti við Hafnarstræti
Friðargangan 2024
Friðargangan er venju samkvæmt á Þorláksmessu og má búast við töfum á umferð á gatnamótum Snorrabrautar og Laugavegar og Lækjargötu og Bankastrætis í tengslum við gönguna. Fólk safnast saman klukkan 17.45 á nýja Hlemmtorginu (á milli Hlemms og Snorrabrautar) og fer gangan af stað klukkan 18.00 og gengið sem leið liggur á Austurvöll þar sem fer fram stuttur fundur.
Lögreglan mun stöðva umferð á meðan að gangan fer yfir Snorrabraut og þegar gangan fer yfir Lækjargötu.