Blómsveigur lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur

Mannlíf Menning og listir

Systurnar Álfrún Hanna og Lóa Björk Gissurardætur lögðu kransinn á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Róbert Reynisson
Systurnar Álfrún Hanna og Lóa Björk Gissurardætur ganga með blómakrans í Hólavallakirkjugarði til að leggja á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur 2024

Blómsveigur frá Reykvíkingum var lagður að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í tilefni kvenréttindadagsins í dag. Þessi hátíðlega athöfn er árleg og að þessu sinni lögðu systurnar Álfrún Hanna og Lóa Björk Gissurardætur kransinn á leiðið. Þórdís Petra Ólafsdóttir sá um fallegan tónlistarflutning og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, flutti ávarp, þar sem hún tileinkaði daginn kvenfyrirmyndum sem ruddu brautina.

Baráttukona fyrir jafnrétti

Bríet Bjarnhéðinsdóttir átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla þannig lýðræðissamfélagið í heild sinni. Hún var stofnandi Kvenréttindafélags Íslands árið 1907 og formaður félagsins frá stofnun allt til ársins 1928. Markmið félagsins var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn.

Blómsveigur á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í Hólavallakirkjugarði

Konur í Reykjavík buðu fram sérstakan Kvennalista fyrir bæjarstjórnarkosningar árið 1908 og var það fyrsta sérframboð kvenna á Íslandi. Kvennalistinn vann stórsigur, kom öllum sínum fulltrúum að. Konurnar fjórar, þær fyrstu sem settust í bæjarstjórn Reykjavíkur, voru Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Guðrún Björnsdóttir, Katrín Magnússon og Þórunn Jónassen. Málin sem þær börðust fyrir í bæjarstjórn voru meðal annars sundkennsla fyrir bæði kynin og leikvellir fyrir börn. Vegna mikillar fátæktar í bænum voru mörg börn vannærð og beitti Bríet Bjarnhéðinsdóttir sér fyrir því í bæjarstjórn að börn fengju mat í skólanum. Matargjafir komust á og var þeim haldið áfram af og til fram á fjórða áratuginn. Bríet lést í Reykjavík árið 1940.

Fleiri myndir frá athöfninni má sjá á Fésbókarsíðu Reykjavíkurborgar.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, flytur ávarp við leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Krans á leiðinu.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, flutti ávarp.