Áfram sérstök vetraropnun í Kaffistofu Samhjálpar

Manneskja fyrir framan Kaffistofu Samhjálpar

Í mars verður áfram sérstök vetraropnun í Kaffistofu Samhjálpar, ætluð gestum neyðarskýla. Gestirnir geta þá dvalið eða komið við í kaffistofunni á milli 14 og 16.30, á þeim tíma þegar neyðarskýlin eru lokuð. Þetta er liður í vetraráætlun velferðarsviðs um opnun neyðarskýla.

 

Í lok síðasta árs gekk velferðarsvið til samstarfs við Samhjálp, svo hægt yrði að lengja opnunartíma Kaffistofu Samhjálpar fyrir þá gesti sem nýta neyðarskýli og hafa miklar og flóknar þjónustuþarfir. 

Kaffistofa Samhjálpar er fyrir fólk sem glímir við fátækt af mismunandi ástæðum og þau sem eru í neyð. Hefðbundinn opnunartími þar er alla daga ársins miili klukkan 10 og 14 og getur fólk fengið þar kaffi, súpu og heitan mat.

Upphaflega var ákveðið að vetraropnun gilti í desember, janúar og febrúar. Var sú ákvörðun tekin til að bregðast við óskum um samastað fyrir þann hóp fólks sem nýtir sér neyðarskýli, þegar kalt er í veðri eða óveður í kortunum.  Í ljósi þess að vel hefur gengið þessa þrjá mánuði og búast má við vetrarveðri næstu vikurnar hefur verið ákveðið að bæta mars við.

Reynslan nýtt í áframhaldandi þróun úrræða

Að sögn Rannveigar Einarsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, hefur samstarfið við Samhjálp um þessa sérstöku opnun gengið mjög vel. „Lenging opnunartíma Kaffistofu Samhjálpar er mikilvæg viðbót við neyðarþjónustu við einstaklinga sem eru heimilislausir af mörgum ástæðum. Fyrst og fremst viljum við tryggja einstaklingum húsaskjól yfir vetrartímann þegar mestar líkur eru á vondu veðri. Þá er mikilvægt að tryggja fyrirsjáanleika í þjónustu en þegar við vorum með neyðaropnanir í neyðarskýlum var það háð appelsínugulum eða rauðum veðurviðvörunum sem gátu skollið á með stuttum fyrirvara og því erfitt að ná til notenda með viðeigandi upplýsingar. Það er einnig mikilvægt að þeir aðilar sem að taka á móti einstaklingum sem eru heimilislausir þekki til þeirra aðstæðna og sýni þeim skilning.“ 

Reynsla af opnuninni í vetur verður nýtt í áframhaldandi þróun úrræða fyrir heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir, í samráði við hópinn. Þá mun Samhjálp skila Reykjavíkurborg gögnum varðandi verkefnið, meðal annars um nýtingu þess, sem mun nýtast þegar tekin verður ákvörðun um framhaldið. „Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru aðilar að samningnum við Samhjálp um lengri opnun Kaffistofunnar og er ánægjulegt að samstaða er um þessa mikilvægu þjónustu,“ segir Rannveig.