Verðlaunuð fyrir vel unnin störf á sviði velferðarmála

Handhafar hvatningarverðlaunanna ásamt fulltrúum í velferðarráði.
Fulltrúar velferðarráðs og þau sem hlutu viðurkenningu í dag.

Hvatningarverðlaun velferðarsviðs fyrir árið 2022 voru veitt á hátíðlegum jólafundi velferðarráðs í dag. Fjölmargar athyglisverðar tilnefningar bárust valnefnd verðlaunanna en í heild hlutu 26 einstaklingar, hópar eða verkefni tilnefningar.  

Hvatningarverðlaun velferðarráðs fyrir árið 2022 hlaut Eyjólfur Einar Elíasson, forstöðumaður framleiðslueldhússins á Vitatorgi, í flokknum einstaklingar, Keðjan hlaut verðlaun í flokknum starfsstaðir og teymi árangurs- og gæðamats í flokki verkefna. Auk þeirra fékk Viðar Gunnarsson viðurkenningu fyrir farsælt starf í þágu velferðarmála. Í valnefnd vegna verðlaunanna voru Heiða Björg Hilmisdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Anna Guðmundsdóttir.

Velferðarráð hefur frá árinu 2011 veitt hvatningarverðlaun. Markmiðið með veitingu er að skapa hvetjandi vinnustaðamenningu og vekja athygli á gróskumiklu starfi í velferðarmálum Reykjavíkurborgar, auk þess að stuðla að aukinni nýbreytni og þróunarstarfi.

Framúrskarandi nýbreytni og frábær fyrirmynd

Sem forstöðumaður framleiðslueldhússins á Vitatorgi er Eyjólfur Einar hluti af matarstefnuteymi Reykjavíkurborgar og hefur gegnt því hlutverki frá því í árslok 2021. Í mati valnefndar og í rökstuðningi þeirra sem tilnefndu Eyjólf Einar til hvatningarverðlaunanna segir að margar jákvæðar breytingar hafi orðið í matar- og umhverfismálum hjá eldhúsinu fyrir tilstuðlan Eyjólfs. Nú sé til að mynda boðið uppá grænmetisrétti fyrir þau það vilja, grænmetisfæðið sé fjölbreytt og unnið frá grunni á staðnum að mestu leyti. Eyjólfur hafi sýnt stórkostlegt fordæmi með því að ljúka við öll fjögur Grænu skrefin á einu bretti og í kjölfarið hafi Vitatorg orðið eitt af umhverfisvænstu eldhúsum landsins. Þar að auki hafi Eyjólfur hafið moltugerð úr matarafgöngum eldhússins sem hann bjóði Grasagarðinum til afnota sem stuðli að þeirri hringrásarhegðun sem Reykjavíkurborg stefnir að í matar- og umhverfismálum. Eyjólfur eigi skilið viðurkenningu fyrir þessa framúrskarandi nýbreytni, fyrir að vera frábær fyrirmynd og hvatning fyrir aðra.

Starfsfólk velferðarsviðs fylgist með afhendingu hvatningarverðlaunanna.

Alltaf tilbúin að vinna að lausnum og nýbreytni

Í flokki verkefna hlaut Keðjan hvatningarverðlaunin í flokki starfsstaða. Hjá Keðjunni er framkvæmd stuðningsþjónusta fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Reykjavík. Frá því að Keðjan hóf starfsemi sína í janúar 2020 hefur mikil áhersla verið á umbóta- og þróunarstarf í veitingu stuðningsþjónustu til barna og fjölskyldna og Keðjan tryggir að börn og fjölskyldur fái sambærileg tilboð um þjónustu, óháð búsetu. Í rökstuðningi valnefndar segir að starfsfólk Keðjunnar hafi sett mikinn metnað í að þróa, bæta og breyta úrræðum eftir þörfum hverju sinni. Uppeldis- og foreldranámskeið Keðjunnar hafi verið að breytast og í auknum mæli sé reynt að koma til móts við fjölskyldur af erlendum uppruna. Innan Keðjunnar séu nú starfrækt teymi sem hafa meðal annars aflað sér sérfræðiþekkingar á tilteknum málefnum, til dæmis stuðningi við seinfæra foreldra og foreldra af erlendum uppruna. Keðjan hafi líka útbúið stutt myndbönd til foreldra þar sem meðal annars er fjallað um hvernig eigi að takast á við þær áskoranir sem koma upp í fjölskyldulífinu. Í rökstuðningi valnefndar segir jafnframt að námskeiðaframboð Keðjunnar komi nú betur til móts við fleiri barnafjölskyldur en verið hefur. Keðjan hafi frá stofnun tekið við fleiri úrræðum og nú síðast heimilum fyrir börn og skammtímadvölum. Starfsfólk Keðjunnar sé alltaf til í að vinna að lausnum og nýbreytni í þjónustu fyrir börnin í borginni. Einnig kom fram að það sé alltaf gott að koma í Keðjuna, tekið sé vel á móti fólki og þar sé gott andrúmsloft. Starfsfólk vinni frábært starf í stuðningsþjónustu fyrir börn og barnafjölskyldur.

Hafi lyft verkefnum tengdum lykiltölum velferðarsviðs í nýjar hæðir 

Teymi árangurs- og gæðamats á skrifstofu velferðarsviðs hlaut hvatningarverðlaunin í flokki verkefna. Teymið sér um framkvæmd tölfræðivinnslu, tölfræðigreiningar, kannanir og úttektir velferðarsviðs. Í mati valnefndar og í rökstuðningi þeirra sem tilnefndu teymið til verðlaunanna segir að starfsfólk teymisins hafi tekið verkefni sem tengjast lykiltölum velferðarsviðs í nýjar hæðir sem og verkefni sem lúta að árangri og gæðamati. Á undanförnum árum hafi verið stöðug þróun í framsetningu og uppbyggingu lykiltalna, mikil áhersla lögð á notendakannanir og hvernig hægt sé að nýta þær í uppbyggingu þjónustunnar. Þá sé starfsfólk teymisins dásamlegt í öllu samstarfi, alltaf tilbúið til að gera sitt besta og veita stuðning og ráðgjöf þegar til þeirra er leitað. „Frábært fagfólk sem við búum öll að,“ segir í einni tilnefningunni.

Heiðrur fyrir farsælt starf á sviði velferðarmála

Að lokum hlaut Viðar Gunnarsson, ráðgjafi í Vettvangs- og ráðgjafarteymi Reykjavíkurborgar, sérstaka viðurkenningu fyrir farsælt starf á svið velferðarmála. Viðar hefur lengi starfað innan málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Fjallað var um Viðar í þáttunum Hvunndagshetjum á RÚV og kemur fram í rökstuðningi valnefndar að þar sé dregin upp raunsæ mynd af manni sem kunni að hvetja og eiga samskipti við fólk sem metið er jaðarsett í samfélaginu. Velferðarsvið sé lánsamt að hafa slíkan ráðgjafa að störfum innan sviðsins og hann sé sannarlega sú fyrirmynd sem þörf er á í þeim mikilvæga og viðkvæma málaflokki sem málefni heimilislausra eru. Viðar nálgist fólk af mikilli virðingu, jafnaðargeði og umhyggju og dæmi ekki. Einnig kom fram að Viðar hafi umhyggju fyrir öðrum án þess að láta bera á sér og vinni að heilum hug í því málefni sem hann vinnur við, sinni fólki af mikilli natni, alúð og mennsku og eigi allan heiður skilið. Auk þess þykir Viðar samstarfsfólki sínu mikil fyrirmynd. Hann hafi á þeim tæpa aldarfjórðungi sem hann hefur starfað hjá velferðarsviði ávallt haft hagsmuni þeirra sem glíma við fjölþættan vanda í forgrunni og vakið athygli á þörf fyrir manneskjulega nálgun og fleiri úrræði í þjónustu við þennan hóp.

Eftirtaldir einstaklingar, hópar eða verkefni voru tilnefnd til hvatningarverðlauna velferðarráðs:

Í flokki einstaklinga:

  • Margrét Lísa Steingrímsdóttir
  • Stefanía Smáradóttir
  • Arne Friðrik Karlsson
  • Helga Sigríður Úlfarsdóttir
  • Viðar Gunnarsson
  • Árni Viðar Þórarinsson
  • Linda Dögg Hólm
  • Eyjólfur Einar Elíasson
  • Elva Björk Sigurðardóttir
  • Magdalena Kjartansdóttir
  • Margrét Edda Yngvadóttir
  • Eybjörg Geirsdóttir

Í flokki hópa eða starfstaða:

  • Opus: vinna og virkni
  • Rafræn miðstöð
  • Keðjan
  • Sólheimar 21b
  • Virknihús
  • Gistiskýlið Lindargötu 48
  • Samræmd móttaka flóttafólks í Reykjavík          

Í flokki verkefna:

  • Betri borg fyrir börn
  • Jóhannes Guðlaugsson og sendiherrar Breiðholts
  • Þjónustuteymi á Vesturmiðstöð
  • Atvinnu- og virknimiðlun
  • Samfló-teymið
  • SPARE – Keðjan
  • Teymi árangurs- og gæðamats á velferðarsviði