Veldu þau listaverk sem þú vilt sjá
Nú er hafinn spennandi leikur Listasafns Reykjavíkur, Myndlistin okkar, þar sem fólki gefst tækifæri til þess að velja listaverk úr safneign á glæsilega myndlistarsýningu Listasafns Reykjavíkur.
Með þátttökunni í leiknum, Myndlistin okkar, gefst fólki tækifæri á að velja sín uppáhalds verk á glæsilega myndlistarsýningu á Kjarvalsstöðum sem verður opnuð á Menningarnótt þann 19. ágúst næstkomandi.
Hvert er uppáhalds listaverkið þitt?
Hvaða listaverk finnst þér standa upp úr?
Hvaða listaverk hreyfir við þér?
Kosning er nú hafin á Betri Reykjavík og er sjónum beint að listaverkum úr safneign Listasafns Reykjavíkur í tilefni af því að á árinu er haldið upp á 50 ára afmæli vígslu Kjarvalsstaða. Hægt að velja eins mörg listaverk og hver vill og hægt að kjósa oftar en einu sinni. Verkin sem fá flest atkvæði þáttakenda í leiknum verða svo á sýningunni.
Við hvetjum öll til að taka þátt og velja sitt uppáhalds listaverk.
Kosningin stendur yfir til 17. júní n.k.