Unglist – listahátíð unga fólksins 2023

Tónleikar á Unglist 2022

Unglist, listahátíð ungs fólks fer fram dagana 4. – 11. nóvember. Hátíðin er nú haldin í 32. sinn og er vettvangur fyrir ungt og upprennandi listafólk á aldrinum 16- 25 ára.

Á hátíðinni er fjölbreytt dagskrá þar sem unga fólkið fær tækifæri til að láta ljós sitt skína. Skáldskapur og myndsköpun fá að flæða frjálst í takti við tónlistarveislur, óheftan dans og lifandi leiklist.

Markmið Unglistar eru:

  •  Að endurspegla menningu ungs fólks.
  •  Að veita ungu fólki tækifæri á að koma listsköpun sinni á framfæri.
  •  Að efla ungt fólk til frumkvæðis og sköpunar, með áherslu á virka og lýðræðislega  þátttöku, reynslunám og áhrif á sviði menninga og lista.
  •  Að skapa ungu fólki vettvang fyrir framkvæmd viðburða frá hugmynd til framkvæmdar.
  •  Að veita samfélaginu auðveldan aðgang að listsköpun ungs fólk.
Dansinn dunar á Unglist 2022

Dansinn dunar, hljóðfæri eru þanin, leikarar etja kappi í spuna, fyrirsætur spranga um tískupalla og óheft myndsköpun og skáldskapur eiga sinn fasta sess á hátíðinni. 

Á Unglist er sköpunargleðin í öndvegi og er hún hátíð nýrra strauma og fjölbreytileika. Taktu þátt í ævintýrinu þér að kostnaðarlausu og njóttu töfra listarinnar á viðburðum Unglistar!

Nokkrir viðburðir:

https://fb.me/e/6Z01arM1r

https://www.facebook.com/events/337382935611576/

https://www.facebook.com/events/1460839441345553

Dagskráin í heild: Unglist – listahátíð unga fólksins