Tryggja bætta heilbrigðisþjónustu við heimilislaust fólk í Reykjavík

Reykjavík úr lofti

Heimahjúkrun Reykjavíkurborgar hefur gert samning við Sjúkratryggingar Íslands um heilbrigðisþjónustu á vettvangi við heimilislaust fólk með flóknar þjónustuþarfir. Samningurinn er gerður í kjölfar þess að heilbrigðisráðherra ákvað að ráðstafa 30 milljónum króna til að tryggja þessum hópi betra aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

Þetta þykir mikilvægt skref, ekki síst í ljósi þess að margir einstaklingar í þessum hópi hafa aðstæðna sinna vegna ekki getað nýtt sér þjónustu heimahjúkrunar Reykjavíkurborgar, sem mun hafa það hlutverk að skipuleggja þjónustuna og hafa yfirsýn yfir umfang hennar. „Við vitum að heimilislaust fólk sækir sér síður heilbrigðisþjónustu með hefðbundnum leiðum og á þetta vonandi eftir að skila sér í bættu aðgengi einstaklinga með mjög flókinn heilbrigðisvanda að heilbrigðisþjónustu,“ segir Anna Sigrún Baldursdóttir, skrifstofustjóri öldrunarmála á velferðarsviði Reykjavíkurborgar.

Munu óska eftir hjúkrunarfræðingum sem þekkja til málaflokksins

Ráðnir verða hjúkrunarfræðingar í verkefnið sem munu starfa eftir markmiðum og gæðastefnu heimahjúkrunar auk þess að vinna mjög náið með starfsfólki í málaflokki heimilislausra, sér í lagi Vettvangs- og ráðgjafarteymi Reykjavíkurborgar (VoR-teyminu). Teymið veitir einstaklingum í neyðarskýlum, smáhúsum og íbúðakjörnum á vegum velferðarsviðs borgarinnar margvíslegan stuðning og ráðgjöf.

„Við munum leitast við að ráða inn einstaklinga með reynslu af hjúkrunarþjónustu við einstaklinga með fjölþættan vanda og hafa skilning og þekkingu á flóknum viðfangsefnum þeirra. Við leggjum áherslu á mannúðlega nálgun og að mæta einstaklingum þar sem þeir eru staddir hverju sinni,“ segir Anna Sigrún. 

Frétt á vef stjórnarráðsins um málið.