Þrjú unnu vegleg verðlaun í jólavættaleik Reykjavíkurborgar
Dregið hefur verið úr innsendum svaseðlum í jólavættaleik Reykjavíkurborgar.
Gunnar Karlsson myndlistarmaður teiknaði vættirnar sem hafa lífgað upp á miðborgina á aðventunni frá árinu 2011. Leppalúði, Leiðindaskjóða, Stekkjastaur, Jólakötturinn og fleiri furðuverur hafa komið sér fyrir á húsveggjum víða í miðbænum í desember ár hvert og úr verður skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna. Dregið hefur verið úr innsendum svarseðlum og vinningshafarnir eru:
- Snævar Sigurðsson
- Ciaran McDonough
- Ársæll Jóhannsson
Til hamingju öll!
Vinningshafarnir hljóta vegleg verðlaun; gjafabréf fyrir fjölskylduna í Fjölskyldu og húsdýragarðinn, gjafabréf í Perluna á sýninguna Undur Íslenskrar náttúru, Menningarkort Reykjavíkur, gjafakort frá Miðborginni markaðsfélag og gjafapokar frá safnbúð Listasafns Reykjavíkur.
Við þökkum öllum fyrir þátttökuna.
Gleðileg jól.