Kynningarfundir Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar hafa verið vel sóttir. Þriðji fundurinn er síðdegis í dag í Rimaskóla. Fundirnir þrír eru teknir upp og settir á vef Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar fyrir helgi. Hægt er að skila athugasemdum til 19. október.
Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavík, vinnur að undirbúningi Sundabrautar frá Sæbraut að Kjalarnesi. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta, dreifa umferð og bæta tengingar við og innan höfuðborgarsvæðisins, stytta akstursleiðir og ferðatíma og minnka þannig útblástur og mengun. Áætlaður framkvæmdatími er á árunum 2026-2031. Framkvæmdin verður boðin út sem samvinnuverkefni.
Athugasemdir til 19. október
Frekari upplýsingar er að finna á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar en opið er fyrir umsagnir og athugasemdir til 19. október 2023. Sjá hér:
- Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg, hefur lagt fram matsáætlun vegna umhverfismats Sundabrautar.
- Með þessari verklýsingu eru boðaðar breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem varða legu og útfærslu Sundabrautar: Sundabraut - verkefnislýsing - breytingar á aðalskipulagi AR40
Morgunfundur 6. október
Morgunfundur verður haldinn föstudaginn 6. október kl. 9:00-10:15 í Sunnanvindi á 1. hæð í húsakynnum Vegagerðarinnar að Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Fundinum verður streymt frá facebook-síðu Vegagerðarinnar. Viðburður á facebook á föstudag.