Stórum áfanga náð í innleiðingu á stefnu um þjónustu við heimilislausa

Reykjavík séð úr lofti um vetur

Í aðgerðaáætlun stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir er lögð áhersla á að koma á fót lágþröskulda heilbrigðisþjónustu. Heimilislaust fólk býr oft við mikinn heilbrigðisvanda og er nýr samningur heimahjúkrunar Reykjavíkurborgar við Sjúkratryggingar Íslands mikilvægt skref í átt að þjónustu sem sniðin er að þörfum hópsins.

Reynsla annarra þjóða sem horft hefur verið til sýnir að virkt samstarf ríkis, sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka sé lykilatriði í því verkefni að draga úr heimilisleysi. Í því ljósi hefur Reykjavíkurborg kallað eftir því að ríkið og önnur sveitarfélög komi í meiri mæli að því að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu við heimilislaust fólk.

Í stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum heimilislausra sem með miklar og flóknar þjónustuþarfir segir meðal annars: „Æskilegt er að sértæk heilbrigðisþjónusta sé í boði í nærumhverfi fyrir þá einstaklinga sem búa í húsnæði sem stendur heimilislausum til boða.“ Í aðgerðaáætlun stefnunnar segir enn fremur að fara eigi í viðræður við ríkið um að sett verði upp annars vegar lágþröskulda heilbrigðisþjónusta og hins vegar neyslurými. Það var því stór áfangi í innleiðingu stefnunnar þegar samningar tókust á milli Sjúkratrygginga Íslands og Heimahjúkrunar Reykjavíkurborgar á dögunum, í kjölfar þess að heilbrigðisráðherra ráðstafaði 30 milljónum krónum til verkefnisins.

Mikilvægt að beita skaðaminnkandi nálgun

Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt mikilvægi þess að einstaklingar, sem alla jafna myndu fá heimahjúkrun en hafa aðstæðna sinna vegna ekki getað nýtt sér hana, fái þjónustu á vettvangi. Mikilvægt er að sérhæfðir hjúkrunarfræðingar sem þekkja vel vettvanginn, og þá skaðaminnkandi hugmyndafræði sem unnið er út frá hjá borginni, sinni starfinu. Auglýst verður eftir þeim á næstu dögum en þeir munu vinna í nánu samstarfi við Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar (VoR-teymið) sem sinnir ráðgjöf og stuðningi, bæði á vettvangi og í húsnæði fyrir heimilislaust fólk.

Stefna Reykjavíkurborgar í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir var samþykkt árið 2019 og gildir til ársins 2025. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs, segir margt hafa áunnist frá því að stefnan var samþykkt. Nefnir hún sem dæmi færanlega neyslurýmið Ylju sem tók til starfa á síðasta ári. Rauði krossinn rekur rýmið, með samningi við velferðarsvið en Sjúkratryggingar Íslands greiða rekstrarkostnaðinn. „Frá því stefna Reykjavíkur var samþykkt fyrir rúmum þremur árum hefur margt áunnist þó enn sé langt í land. Við höfum innleitt „húsnæði fyrst“ og  fjölgað búsetukostum verulega: Stökum íbúðum, smáhúsum og íbúðakjörnum. Við höfum líka styrkt Vettvangs- og ráðgjafarteymið, opnað nýtt neyðar gistiskýli fyrir karla og áfangaheimili fyrir konur í bata. Við höfum kallað eftir samtali og samstarfi við ríkið og önnur sveitarfélög um þennan mikilvæga málaflokk því mikilvægt er að Ísland eignist heildstæða stefnu um hvernig kom eigi í veg fyrir að fólk verði heimilislaust og hvernig þjónustu við ætlum að veita þeim einstaklingum sem þar lenda. Það er fagnaðarefni að finna aukinn skilning á málefninu og mikilvægt að við höldum áfram á þessari braut,“ segir Heiða.