Reykjavíkurborg selur Alliance-húsið  

Alliance-húsið við Grandagarð 2

Borgarráð hefur samþykkt tilboð hæstbjóðanda Arcus ehf. í Alliance-húsið við Grandagarð 2 upp á 880 milljónir króna.

Útgerðarfyrirtækið Alliance hf.

Alliance-húsið er sögufrægt hús sem áður stóð við Mýrargötu 3 í Reykjavík og var byggt af útgerðarfyrirtækinu Alliance hf. sem Thor Jensen og fleiri stofnuðu árið 1905. Fyrirtækið var umsvifamikið í útgerð og atvinnulífi Reykjavíkur og stóð fyrir því að smíða fyrsta togarann, Jón forseta, sem Íslendingar eignuðust árið 1907. Alliance hf. lét byggja Alliance-húsið fyrir saltverkun og hefur það mikið menningarsögulegt gildi og gefur innsýn í þá atvinnustarfsemi sem eitt sinn einkenndi gamla Vesturbæinn. Meðfram húsinu voru svokölluð stakkastæði þar sem saltfiskur var breiddur út til þerris eða hlaðið upp í stakka. Fiskur var þurrkaður á þessu svæði fram yfir 1940.

Húsið var byggt á árunum 1924 til 1925 eftir teikningum Guðmundar H. Þorlákssonar húsameistara og er lítið breytt frá upprunalegri mynd. Það er einnig talið hafa mikið byggingarsögulegt gildi sem dæmi um glæsilegt höfundarverk Guðmundar og er ytra byrði hússins friðað.

Reykjavíkurborg eignast húsið

Reykjavíkurborg festi kaup á Grandagarði 2 árið 2012 og eftir kaupin var farið í framkvæmdir þar sem ytra byrði hússins var gert upp í anda fyrri tíma. Í dag er starfrækt í húsinu Sögusafnið og veitingastaðurinn Matur og Drykkur ásamt því að nokkrir listamenn hafa aðstöðu á efri hæðum hússins.

Ákveðið var að vinna nýtt deiliskipulag fyrir húsið og umhverfi þess sem miðar að því að auka nýtingu á lóðinni í samræmi við markmið borgarinnar um góða borgarþróun eins og hún er tilgreind í aðalskipulagi. Nýja skipulagið var samþykkt í borgarráði í mars 2018.  Á fundi borgarráðs þann 28. júní 2018 var samþykkt að hefja söluferli á fasteigninni og meðfylgjandi byggingarrétti með samkeppnisfyrirkomulagi.

Húsnæðið var auglýst til sölu og bárust tvö tilboð. Annar aðilinn féll frá tilboði sínu og samið var við Arcus ehf. um kaup á húsinu. Arcus ehf. hefur í hyggju að breyta húsinu í saltfisksetur með veitingastað og á efri hæðum hússins verði svo þróað skrifstofuhótel, Jörundarstofa, til útleigu fyrir einyrkja.