Reykjavík leiðir stýrihóp borgarstjóra um framtíðarsýn OECD ríkja
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, sem er formaður bandalags borgarstjóra OECD ríkja (Efnahags- og framfarastofnunin), stýrði sínum fyrsta fundi stýrihóps á vegum stofnunarinnar síðastliðinn föstudag. Stýrihópurinn mun vinna að því að móta stefnu til að innleiða nýja framtíðarsýn fyrir bandalagið.
Borgarstjórar OECD ríkja sem eru í bandalagi um hagvöxt án aðgreiningar hafa skuldbundið sig til að takast á við ójöfnuð og stuðla að vexti sem skapar efnahagsleg tækifæri fyrir alla, nú þegar borgir heims glíma við gríðarlega erfiðar áskoranir svo sem síhækkandi framfærslukostnað, loftslagsbreytingar og vaxandi ójöfnuð.
Dagur Eggertsson borgarstjóri stofnaði stýrihópinn eftir að hann tók við formennsku í bandalaginu en hann skipa Ricardo Rio, borgarstjóri Braga í Portúgal, Matúš Vallo, borgarstjóri Bratislava í Slóvakíu, Philippe Close, borgarstjóri Brussel í Belgíu, Susan Aitken, borgarstjóri Glasgow í Bretlandi, Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar í Frakklandi, Claudio Castro Salas borgarstjóri Renca í Chile og Yuriko Koike borgarstjóri Tókýó í Japan. Stýrihópurinn býr yfir víðtækri reynslu af því að auka jöfnuð í samfélaginu og vinna að efnahagsúrbótum við mismunandi aðstæður í hverju landi.
Ég er ánægður með að vinna með þessum sterka og fjölbreytta hópi borgarleiðtoga við að sporna gegn ójöfnuði og tryggja efnahagsleg tækifæri fyrir alla. Við munum vinna að sameiginlegri framtíðarsýn með því að efla frumkvæði, miðla áþreifanlegum lausnum, styrkja stefnumótun á sviðum sem hafa áhrif á hagvöxt án aðgreiningar, til dæmis með því að auka aðgang fólks að vinnu- og húsnæðismarkaði og tryggja að græn og stafræn umbreyting komi öllum íbúum til góða.
Mathias Cormann, framkvæmdastjóri OECD, fagnar frumkvæði borgarstjóra Reykjavíkur um stofnun þessa stýrihóps. „Við hlökkum til að vinna með stýrihópnum og þeim borgarstjórum sem vinna með okkur í bandalaginu við að finna leiðir til að bregðast við brýnustu áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir í dag – allt frá auknum kostnaði við framfærslu til loftslagsbreytinga – og koma á framfæri sameiginlegri sýn okkar um borgir sem tryggja sjálfbæran og kraftmikinn vöxt án aðgreiningar.“
Stýrihópurinn mun veita stefnumótandi leiðbeiningar, efla hæfni borganna til hagvaxtar án aðgreiningar, og vera rödd borgarstjóra innan bandalagsins. Þau munu eiga samskipti við innlend stjórnvöld um alþjóðamál, þar á meðal innan hinna ýmsu málasviða OECD. Stýrihópurinn mun einnig vinna að innri málefnum, meðal annars með því að velja sér formann bandalagsins á tveggja ára fresti.
OECD Champion Mayors for Inclusive Growth Initiative, er þjónað af OECD Centre for Entrepreneurship, SMEs, Regions and Cities sem hjálpar stjórnvöldum á öllum stigum , svæðisbundnum og innlendum stjórnvöldum að styðja við nýsköpun og frumkvöðla, og aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki til að stuðla að sjálfbærni, efla atvinnusköpun á staðnum og innleiða trausta stefnu í ferðaþjónustu.