Rafrænir greiðsluseðlar
Borgarráð hefur samþykkt að frá 1. mars 2023 verður hætt að prenta út og senda greiðsluseðla til einstaklinga sem eru 79 ára og yngri sem og til allra fyrirtækja.
Notendur 79 ára og yngri fá send bréf um breytingarnar með öllum greiðsluseðlum í janúar og febrúar. Þar verða leiðbeiningar um Rafrænu Reykjavík, mínar síður auk þess sem greiðsluseðlar birtast í netbanka. Fólk getur líka haft samband við þjónustuver borgarinnar vilji það fá áfram senda greiðsluseðla. Það er fjárstýringar- og innheimstuskrifstofa sem undirbúa og leiða verkefnið og tryggja að það verði vel kynnt.
Áður en breytingin var samþykkt í borgarráði var öldungaráð og aðgengis- og samráðsnefnd beðin um að veita umsögn um breytinguna. Aðgengis- og samráðsnefnd tók málið upp 1. September sl. og fagnaði stafrænni umbreytingu. Öldungaráð komst að sömu niðurstöðu á fundi 20. September sl. og fagnaði einnig breytingum sem einfalda líf fólks, eru fjárhagsleg hagræðing og umhverfisvæn. Bæði aðgengis- og samráðsnefnd og öldungaráð töldu miklu skipta að kynna breytinguna vel fyrir notendum þjónustunnar og starfsfólki velferðarsviðs.