Ráðhúsið upplýst með fjólubláu ljósi
Alþjóðadagur fatlaðra er haldinn um heim allan 3. desember af því tilefni er Ráðhús Reykjavíkur lýst upp með fjólubláu ljósi.
Fyrsti alþjóðlegi dagur fatlaðs fólks var haldinn af Sameinuðu þjóðunum árið 1992. Í tilefni dagsins stendur ÖBÍ fyrir átakinu Upplýst samfélag þar sem landsmenn eru hvattir til að lýsa upp hús sín í fjólubláum lit en fjólublár er litur alþjóðlegrar réttindabaráttu fatlaðs fólks.
Á Alþjóðlegum degi fatlaðs fólks sem haldinn er í dag, 3. desember, er kastljósinu beint að réttindabaráttu fatlaðs fólks og mikilvægu framlagi þess breiða hóps í samfélaginu.
Í tilefni dagsins afhenti Öryrkjabandalag Íslands hvatningarverðlaun samtakanna við hátíðlega athöfn í Mannréttindahúsinu. Bíó Paradís hlaut hvatningarverðlaunin fyrir að auka aðgengi ólíkra hópa. Þar hafi verið beitt nálgun sem endurspegli nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðli að einu samfélagi fyrir alla.