Óskað eftir óútgefnu handriti að ljóðabók
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar eru veitt ár hvert í minningu Tómasar Guðmundssonar fyrir óprentað handrit að ljóðabók.
Senda skal inn til Reykjavíkurborgar áður óútgefið handrit að ljóðabók, frumsamið á íslensku. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila í þremur eintökum, merktum dulnefni, en nafn og símanúmer fylgi með í lokuðu umslagi.
Handrit berist í síðasta lagi miðvikudaginn 1. júní 2023
Utanáskrift sendinga:
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
b.t. Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO
Ráðhúsi Reykjavíkur
Tjarnargötu 11
101 Reykjavík
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendinguna niður það ár.
Verðlaunahafi hlýtur verðlaunafé. Það er greitt af Reykjavíkurborg og eru ein verðlaun veitt árlega í vetrarbyrjun. Árið 2022 verður upphæð verðlaunanna 1.000.000 krónur.
Dómnefnd verðlaunanna er skipuð af borgarráði og er hún skipuð þremur einstaklingum. Einn samkvæmt tilnefningu FÍBÚT, einn samkvæmt tilnefningu Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO og einn samkvæmt tilnefningu Rithöfundasambands Íslands.