Ósk um viðtöl vegna vöggustofa Reykjavíkurborgar

Vöggustofa Thorvaldsenfélagsins við Dyngjuveg 18 í Reykjavík árið 1967. Mynd frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Vöggustofa Thorvaldsenfélagsins við Dyngjuveg 18 í Reykjavík árið 1967. Mynd frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Nefnd um heildstæða athugun á starfsemi vöggustofa að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins óskar vinsamlegast eftir því að þeir sem vistaðir voru sem börn á umræddum vöggustofum, eða aðstandendur þeirra, og hafa áhuga á því að veita nefndinni viðtal um þau atvik sem þau muna eftir. Rétt er að taka fram að allir þeir sem hafa þegar rætt við nefndina þurfa ekki að mæta aftur til viðtals. 

Jafnframt óskar nefndin góðfúslega eftir því að þeir sem störfuðu á vöggustofunum á umræddu tímabili, og búa yfir upplýsingum sem varpað geta ljósi á þau atriði sem nefndinni ber að kanna, hafi samband með sama hætti.

Þeir einstaklingar sem vilja segja frá reynslu sinni eru beðnir um að hafa samband við nefndina sem fyrst og eigi síðar en 8. maí nk. á netfangið voggustofur@reykjavik.is.

 

Samkvæmt samþykkt borgarráðs frá 10. mars 2022 er það hlutverk nefndarinnar að:

 

Að lýsa starfsemi vöggustofanna, hlutverki þeirra í barnaverndar- og/eða uppeldismálum og tildrögum þess að börn voru vistuð þar á því tímabili sem um ræðir.

 

Að leitast við að staðreyna eins og kostur er hvort og þá í hvaða mæli börn sem vistuð voru á stofnuninni hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi meðan á dvölinni stóð.

 

Að lýsa því hvernig eftirliti Reykjavíkurborgar og ríkisins með vöggustofunum var háttað.

 

Að lýsa öðrum atriðum sem tengjast starfsemi vöggustofanna og nefndin telur þarfnast skoðunar, þar á meðal eins og kostur er afdrifum þeirra barna sem vistuð voru á vöggustofunum eftir að dvölinni lauk.