Opinber heimsókn forsetahjónanna til Reykjavíkur - dagskrá
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid koma í opinbera heimsókn til Reykjavíkur á morgun, fimmtudaginn, 23. nóvember. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og eiginkona hans, Arna Dögg Einarsdóttir, taka á móti þeim í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 8:00 og fylgja þeim vítt og breitt um borgina.
Dagskrá heimsóknarinnar er eftirfarandi:
08:00 - Borgarstjóri og frú taka á móti forsetahjónunum við aðalinngang Ráðhúss Reykjavíkur. Skólahljómsveit Miðbæjar og Vesturbæjar spilar, forsetahjónin heimsækja Grindvíkinga sem nú hafa aðstöðu í Ráðhúsinu, og hitta starfsfólk borgarinnar og borgarstjórn.
09:15 - Heimsókn í þjónustuver Reykjavíkurborgar í Borgartúni.
09:50 - Heimsókn í fjölmenningarleikskólann Ösp. Leikskólabörn og nemendur í 1. bekk Fellaskóla syngja lag á sal og forsetahjónin kynnast meðal annars verkefnunum „Málþroski og læsi í Fellahverfi“ og „Betri borg fyrir börn“.
10:15 - Heimsókn í fjölskyldumiðstöðina Gerðuberg. Forsetahjónin kynna sér meðal annars félagsstarf eldri borgara, líta inn á foreldramorgunn, kynnast samfélagsverkefninu Sendiherrar Breiðholts og hlýða á karlakórinn Kátir Karlar.
11:00 - Austurberg, unglingadeildir grunnskóla í Breiðholti. 800 unglingar frá skólum Breiðholts verða samankomnir. Ávörp frá fulltrúum nemendafélaga, forseta Íslands og borgarstjóra og hlýtt á C sveit Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts.
11:35 - Breiðholtsskóli. Heimsókn í íslenskuver. Nemendur miðstigs mynda göng og verða með fánaveifur.
12:05 - Fimleikahús Fylkis. Betri borgarar í Árbæ, íþróttahópur eldri borgara. Forsetahjónum, borgarstjóra og frú ásamt fylgdarliði boðið að taka þátt í upphitunaræfingum.
12:40 - Félags- og menningarmiðstöðin Borgir. Hádegismatur og heimsókn til eldri borgara. Sönghópurinn Korpusystkin taka lagið.
13:25 - Vinnu- og virknimiðstöðin Smiðjan. Kynning á starfsemi og innlit í vinnustofur.
13:55 - Gufunes. Heimsókn í Kukl og RVK Studios. Forsetahjónin hitta Þorvarð Björgúlfsson hjá Kukl og Baltasar Kormák hjá RVK Studios og kynna sér starfsemina.
14:45 - Skalli í Árbæ. Ísferð. Minnt á mikilvægi kaupmannsins á horninu og hverfissjoppanna í hjörtum margra borgarbúa.
15:10 - Hverfismiðstöðin í Úlfarsárdal. Forsetahjónin kynnast starfsemi Dalslaugar, Dalskóla, Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal og annarri þjónustu í hverfinu. Heilsað upp á börn sem elda í útieldhúsi skólans.
16:05 - Orkuveitan, Elliðaárdalur. Forsetahjónum kynnt saga Orkuveitu Reykjavíkur og fyrirtækja í Orkuveitusamstæðunni og mikilvægi rafstöðvarinnar fyrir samfélagið. Kynning á Heimili Veitna og fleira.
16:30 - Farið á Á Bístró þar sem Carbfix verður meðal annars kynnt og sönghópur OR syngur lag.
17:00 - Kjarvalsstaðir. Hátíðardagskrá fyrir borgarbúa og aðra gesti.
- Tröllið Tufti og flamingóar á vappi.
- Lúðrasveit Austurbæjar tekur á móti forsetahjónunum.
- Sýning Heklu Daggar Jónsdóttur 0° 0° Núlleyja með leiðsögn.
- Krakkar frá leikskólanum Kvistaborg rappa.
- Ávörp frá forseta Íslands og borgarstjóra Reykjavíkur.
- Ester Talía Casey syngur lög úr sýningu Borgarleikhússins Deleríum Búbónis.
- Hljómsveitin Bogomil Font.
- Formlegri dagskrá á Kjarvalsstöðum lýkur kl. 19:00
19:30 - Kvöldverður í Höfða.