
Laun nemenda Vinnuskóla Reykavíkur verða óbreytt frá því í fyrra. Síðasta sumar var taxtinn hækkaður um 7% á milli ára. Tímakaup nemenda í 8. bekk er 711 krónur, 9. bekk 947 krónur og 10. bekk 1.184 krónur. Ríflega 3.000 nemendur eru skráðir í Vinnuskólann í sumar.
Þetta þýðir að heildarlaun 8. bekkinga verða 44.002 krónur, 9. bekkinga 117.216 krónur og 10. bekkinga 138.470 krónur.
Laun Vinnuskólans í Reykjavík 2023
Árgangur | Fjöldi | Tímar (klst) |
Tímakaup (kr) |
Með orlofi og gjöldum (kr) |
Heildarlaun á nemanda (kr) |
Alls (kr) |
8. bekkur | 1268 | 52,5 | 711 | 838 | 44.002 | 55.795.000 |
9. bekkur | 1066 | 105 | 947 | 1.116 | 117.216 | 124.952.115 |
10. bekkur | 725 | 105 | 1.184 | 1.319 | 138.470 | 100.390.707 |
= 281.137.822 |
Ástæða þess að launataxtinn lá ekki fyrir fyrr en nú er að þetta var ekki inni í fjárhagsáætlun. Veitt var viðbótarfjárheimild vegna launahækkunarinnar í fyrra en hækkunin hefur ekki verið færð inn í ramma sviðsins.
Umsóknum nemenda í Vinnuskólann fjölgar hratt á síðustu dögum áður en skólinn hefst þó svo umsóknarfrestur sé 15. maí. Vinnuskólinn tekur við öllum nemendum sem sækja um, engum er hafnað þó svo umsóknarfrestur sé liðinn. Áætlun um fjölda nemenda og þörf fyrir auknar fjárheimildir lá því ekki fyrir fyrr en við upphaf skólans. Borgarráð samþykkti þær 95 milljónir sem upp á vantaði fyrir laununum á fundi sínum í morgun.