NPA-samningum fjölgað verulega í Reykjavík
Borgarráð samþykkti í dag að fjölga samningum um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) um fjórtán frá og með 1. nóvember 2023. Í Reykjavík eru nú 27 einstaklingar með NPA en verða 41 eftir fjölgunina.
Notendastýrð persónuleg aðstoð er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Fatlað fólk semur við sitt sveitarfélag um að sjá um og skipuleggja sína eigin aðstoð. Einstaklingurinn og sveitarfélagið gera þá svokallaðan NPA-samning sín á milli.
„Það er mjög gleðilegt að við getum loks fjölgað samningum um þessa mikilvægu þjónustu. Það er ekki bara gríðarlega mikilvægt fyrir þá einstaklinga og fjölskyldur sem fá nú tækifæri til að lifa sjálfstæðu lífi heldur okkur öll, íbúa Reykjavíkur,” segir Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur.
Eigum öll rétt á að lifa virku og sjálfstæðu lífi
Samningum um NPA hefur ekki verið fjölgað í Reykjavík frá árinu 2021. Ástæðan er sú að ekki fékkst mótframlag frá ríki vegna nýrra NPA-samninga á árinu 2022 og engir samningar hafa verið settir af stað það sem af er af árinu 2023. Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur lýst yfir að það sé búið að tryggja mótframlag ríkisins vegna rúmlega 50 nýrra NPA samninga á árinu 2023.
Kostnaður Reykjavíkurborgar á árinu 2023 vegna fjölgunar samninga er metinn 46 milljónir króna, að teknu tilliti til 25% mótframlags frá ríki og tilfærslu fjárheimilda úr beingreiðslusamningum yfir í NPA. Kostnaður á árinu 2024 vegna fjölgunar samninga nemur 276,5 milljónum króna að teknu tilliti til 25% mótframlags frá ríki og tilfærslu fjárheimilda úr beingreiðslusamningum yfir í NPA. Viðræður milli ríkis og sveitarfélaga standa enn yfir þar sem samið er um skiptingu kostnaðar vegna málaflokks fatlaðs fólk.
„Samfélag virkar best ef öll taka þátt og það er ömurlegt að ríkisvaldið haldi í raun mannréttindum fatlaðs fólks í ákveðinni gíslingu með því að tryggja sveitarfélögum ekki tekjustofna í samræmi við lög. Reykjavíkurborg og Reykvíkingar geta ekki beðið lengur, við eigum öll rétt á að lifa virku og sjálfstæðu lífi,“ segir Heiða.
44 einstaklingar í Reykjavík eiga samþykkta umsókn um NPA og bíða eftir að þjónusta geti hafist samkvæmt samningum.