Niðurfelling leikskólagjalda í dymbilviku og vetrarfríum

Leikskólabras.

Sú breyting hefur verið gerð að hægt er sækja um niðurfellingu á leikskólagjöldum barna sem ekki sækja leikskóla í dymbilviku og virka daga í vetrarleyfum grunnskóla. Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs fyrir páska.

Sækja þarf um niðurfellinguna

Til að fá gjöldin felld niður þarf að sækja um niðurfellingu fyrir tilgreindan umsóknarfrest. Niðurfellingin á aðeins við ef frí er tekið alla virka daga sem tilheyra hverju tímabili. Það er, alla virka daga dymbilviku eða alla virka daga í öðru eða báðum vetrarfríum grunnskóla samkvæmt samþykktu skóladagatali skóla- og frístundaráðs.

Með dymbilviku er átt við vikuna fyrir páska. Niðurfelling gjalda á þá við um mánudag, þriðjudag og miðvikudag fyrir skírdag og föstudaginn langa. Vetrarleyfi grunnskóla eru þrír dagar á haustönn og tveir dagar á vorönn. Samtals fimm virkir dagar yfir skólaárið.

Hefur reynst vel dagana á milli jóla og nýárs

Borgarráð samþykkti síðla árs 2018 að foreldrar gætu sótt um niðurfellingu gjalda virka daga milli jóla og nýárs að því tilskildu að leyfi væri tekið alla dagana. Fyrirkomulagið hefur nú fest sig í sessi í Reykjavík og hafa margar fjölskyldur nýtt sér þennan möguleika á liðnum árum eða 47 til 61 prósent.

Barnafjöldi á leikskólum þessa daga ætti að verða fyrirséðari ef hægt er að sækja um niðurfellingu fyrirfram. Vonir standa til að hægt verði að skipuleggja leikskólastarfið betur með tilliti til barnafjölda og svigrúm skapist til að leyfa orlofstöku eða að starfsfólk geti tekið út uppsafnaða styttingu vinnuviku.