Neyðarskýlin í Reykjavík verða opin um helgina
Sólarhringsopnun verður í neyðarskýlunum í Reykjavík á laugardag og sunnudag. Neyðaráætlun í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir hefur verið virkjuð vegna þess mikla kulda sem spáð er um helgina.
Neyðaráætlunin er virkjuð í rauðum og appelsínugulum veðurviðvörunum, þegar fólki er almennt ráðlagt að halda sig inni við. Hún er líka virkjuð í miklu frosti.
Markmið neyðaráætlunarinnar að tryggja að upplýsingar um slæmt veður og breyttan opnunartíma neyðarskýla berist gestum neyðarskýla og öðrum sem kunna að vera í ótryggum aðstæðum. VoR-teyminu, stjórnendum neyðarúrræða fyrir heimilislausa, bráðamóttöku Landspítalans, lögreglu, Rauða krossinum og öðrum sem koma að þjónustu við heimilislaust fólkí Reykjavík er gert viðvart.
Vel er fylgst með veðurspám og tilkynningum frá Almannavörnum allan veturinn og brugðist við í hvert sinn sem þörf er á.