Metnaðarfullt íþróttastarf í Bakkaborg

Heilsa Íþróttir og útivist

Börnin í Bakkaborg hlakka til íþróttatímanna með Rímasi.
Börn á Bakkaborg í íþróttatíma. Eitt barn fær aðstoð við kollhnís, eitt skríður í gegnum pappagöng og tvö tipla á litríkum dýnum.

Í leikskólanum Bakkaborg fer fram metnaðarfullt íþróttastarf undir handleiðslu Rimvydas Sukliauskas íþróttakennara, eða Rímas, eins og hann er kallaður í leikskólanum. Öll börn leikskólans fá íþróttatíma með Rímasi einu sinni í viku, að undanskildum elsta árganginum sem fer í íþróttatíma í Breiðholtsskóla í undirbúningi fyrir grunnskólabyrjun.

Það er fimmtudagsmorgunn. Börnin á næstyngstu deild eru nýbúin með morgunmatinn og byrjuð í frjálsum leik. Skyndilega stökkva þau öll á fætur, hlaupa að dyrunum og kalla: „Rímas! Rímas er kominn!“. Rímas er mættur með vikulega íþróttatímann og börnin eru spennt að byrja.

Jákvætt viðhorf til hreyfingar er markmiðið

Börnunum er skipt niður í minni hópa og fyrsti hópurinn fer inn. Tíminn byrjar á léttri upphitun, til dæmis með því að klappa og veifa höndunum. Næst tekur við leikur að læra þar sem börnin læra litina í gegnum hreyfingu, þrautabraut og leiki. Íþróttatímanum er svo lokað með „bátsferð“ þar sem Rímas dregur börnin á dýnu um rýmið og fram og þá má næsti hópur koma inn. Tíminn er aðlagaður hverjum aldurshóp og hjá eldri börnunum bætast við útiíþróttir og fimleikaæfingar á borð við kollhnís og að klifra í rimlum. 

Fylgst er með framförum yfir árið en markmið íþrótta í Bakkaborg er umfram allt að hreyfing sé skemmtileg og að börnin fari með jákvætt viðhorf til hreyfingar út í lífið.