Líf og fjör í Laugardalnum á ReyCup
Um 2300 keppendur úr 132 fótboltaliðum taka þátt í ReyCup 2023 sem var sett með pompi og prakt í Laugardalnum í gærkvöldi. Sápukúlur svifu og Emmsjé Gauti hélt uppi stuðinu. Í dag og um helgina er og verður Laugardalurinn fullur af börnum í keppnisbúningum af öllu litum og gerðum ásamt stuðningsfólki.
Liðin koma af öllu landinu og tólf koma erlendis frá, það er frá Englandi, Bandaríkjunum, Danmörku, Þýskalandi og Malaví. Mikil stemning er fyrir mótinu og veðurspáin hagstæð. „Það er alveg gríðarlega góð orka í dalnum og mikil stemning hjá öllum. Opnunarhátíðin gekk smurt fyrir sig. Við hvöttum liðin til að hópa sig saman með sín liðsskilti og rölta inn á svæðið sem hópur og koma sér svo fyrir,“ segir Gunnhildur Ásmundsdóttir, framkvæmdastjóri ReyCup. Emmsjé Gauti hélt svo uppi stuðinu í lok setningarhátíðarinnar eins og hann kann best.
Eftir setningarhátíðina söfnuðust hundruð Þróttara saman til að sýna Isaac Kwateng, vallarstjóra Þróttar stuðning. Isaac kom hingað til lands frá Gana árið 2018 og sótti um alþjóðlega vernd en hefur ítrekað fengið höfnun. Nú liggur fyrir að vísa eigi honum úr landi þrátt fyrir að hann sé bæði með dvalarleyfi og atvinnuleyfi og að líf hans gangi sinn vanagang. Með samstöðunni vildu Þróttarar sýna honum stuðning og að þeim væri ekki sama um hann og þá erfiðu stöðu sem hann er í.
„Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja um þennan kærleika sem mér er sýndur. Ég veit ekki hvernig ég get lýst tilfinningunni en ég er orðlaus og mjög glaður yfir því að finna þennan stuðning,“ sagði Isaac að samstöðunni lokinni. Hann bætti við að hann haldi fast í vonina um að hlutirnir breytist og að hann fái að vera áfram á Íslandi en hér hefur hann verið í á sjötta ár. „Hér á ég marga vini og margir þeirra eru mér sem fjölskylda. Ég elska Ísland sem er mitt annað heimaland. Landið er friðsælt og ég kann virkilega að meta hvað fólkið hér er gott og vinalegt.“