Laugardalslaug opnar 20. október
Laugardalslaug mun opna aftur fyrir almenning föstudaginn 20. október kl. 13:00. Því miður gekk það ekki eftir að opna í dag þriðjudaginn 17. október eins og stefnt var að.
Árni Jónsson, forstöðumaður Laugardalslaugar segir að nóg hafi verið að gera við lagfæringar á lauginni og hvergi slegið slöku við.
Meðal framkvæmda í lokun var málun í útibúningsklefum og í laugarkeri, múrvinna á bakka og í laug, viðgerð á pípulögnum, útskipting á kýraugum og lokun yfir hluta af stærri gluggum, aðskilja laugarker, þrif á yfirfallsrennum, djúpþrif á laugarbotni, þrif og viðhald á heitum pottum, viðgerðir á hurðum og ýmislegt annað.
"Það eru nokkrir óvissuþættir sem tengjast því að fylla laugarkerið sjálft en við erum bjartsýn á að það gangi allt vel. Heitir pottir verða komnir í fullan rekstur á föstudag og við gerum svo sannarlega ráð fyrir því að hægt verði að synda í lauginni.Takk fyrir þolinmæðina ágætu sundlaugargestir. Við hlökkum mikið til að taka á móti okkar dásamlegu gestum á föstudaginn" segir Árni.