Kamilla Kjerúlf hlýtur barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2023

Kamilla Kjerúlf, handhafi barnabókaverðlauna Guðrúnar Helgadóttur 2023 og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri að lokinni athöfninni í Höfða
Kamilla Kjerúlf, handhafi barnabókaverðlauna Guðrúnar Helgadóttur 2023 og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri að lokinni athöfninni í Höfða

Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur voru afhent í Höfða í dag við hátíðlega athöfn. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Kamillu Kjerúlf verðlaunin en hún bar sigur úr bítum fyrir handritið Leyndardómar draumaríkisins.

Barnabókaverðlaun voru stofnuð árið 2018 til heiðurs Guðrúnu Helgadóttur rithöfundi en bækur hennar hafa glatt og auðgað ímyndunarafl margra kynslóða lesenda. Guðrún lést á síðasta ári og við athöfnina í Höfða minntist borgarstjóri sérstaklega á hennar mikilvæga framlag til barnabókmennta.

Verðlaunin eru veitt árlega fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og styðja þannig við nýsköpun í greininni. Að þessu sinni bárust 24 óprentuð handrit.

Kamilla er fædd árið 1995 og er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Leyndardómar Draumaríkisins er fyrsta bók hennar og verður bókin gefin út hjá Bjarti / Veröld.

Kamilla Kjerúlf, handhafi barnabókaverðlauna Guðrúnar Helgadóttur 2023

Ég hef allt frá unga aldri haft mikla ástríðu fyrir lestri og tel það mjög mikilvægt að börnum standi til boða gott úrval af fjölbreyttum barnabókum.

Kamilla Kjerúlf

Í dómnefnd sátu Kristinn Jón Ólafsson, Yrsa Sigurðardóttir og dr. Guðrún Steinþórsdóttir. Í umsögn dómnefndar segir:

„Í Leyndardómum draumaríkisins tekst höfundi að smíða vel úthugsaðan ævintýraheim sem söguhetjan flakkar um með flæðandi hætti. Persónur eru vel framsettar og trúverðugar og ritstíllinn góður. Aðalpersónan Davíð stendur frammi fyrir vandamáli í raunheimum sem ævintýralegar heimsóknir hans í draumalandið hjálpa honum að takast á við. Sögupersónan vex fyrir vikið og sýnir ungum lesendum að oft má yfirstíga vandamál sem virðast óleysanleg. Jafnframt hefur höfundur gætt þess að einskorða söguna ekki við eitt kyn og eru samskipti Davíðs við aðrar persónur bæði eðlileg og uppbyggileg. En það sem er þó fyrir mestu er sú skoðun dómnefndar að sagan er skemmtileg og spennandi og munu ungir lesendur án efa taka henni fagnandi, eins og bókum Guðrúnar Helgadóttur meðan að hennar naut við.”

Kamilla sagði það að fá verðlaunin fyrir sína fyrstu bók mikla hvatningu til að halda áfram að skrifa. „Ég hef allt frá unga aldri haft mikla ástríðu fyrir lestri og tel það mjög mikilvægt að börnum standi til boða gott úrval af fjölbreyttum barnabókum“ Hún minntist einnig Guðrúnar og þakkaði henni fyrir ómetanlegt framlag til barnamenningar.

Verðlaunin eru nú veitt í fjórða sinn. Fyrri verðlaunahafar voru 2019: Bergrún Íris Sævarsdóttir: Kennarinn sem hvarf. 2020: Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir: Blokkin á heimsenda. 2021: Margrét Tryggvadóttir: Sterk. 2022: Verðlaunin voru ekki veitt þar sem ekkert handrit þótti uppfylla þær kröfur sem gerð eru til verðlaunaverka.