Jólaljósin tendruð á Oslóartrénu
Jólaljósin á Oslóartrénu voru tendruð á Austurvelli í dag klukkan 16 á fyrsta degi aðventu. Fjöldi fólks lagði leið sína á Austurvöll til þess að taka þátt í athöfninni enda má segja að hún marki upphaf jólanna með borgarbúa.
Oslóartréð sótt til Skógræktarfélags Reykjavíkur í Heiðmörk í vikunni og er það 12.3 metra hátt sitkagrenitré sem skreytt var með 1,2km af seríu með 11.760 ljósum, 120 gylltum kúlum og svo er fallega jólastjarnan á toppnum.
Tufti og tröllabörnin voru á vappi á Austurvelli og heilsuðu upp á viðstadda, Lúðrasveit Reykjavíkur lék aðventu- og jólalög frá klukkan 15.30. Klukkan 16 hófst svo athöfnin sjálf og sá Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona um að kynna atriðin.
Sigríður Thorlacius og Snorri Helgason ásamt hljómsveit fluttu falleg jólalög.
Abdullah Alsabeehg borgarfulltrúi flutti kveðju frá Oslóarborg og afhenti þýddar bækur að gjöf sem gefnar verða á skólabókasöfn í grunnskólum Reykjavíkur.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar þakkaði Oslóarbúum fyrir gjöfina og vináttuna í gegnum árin í ræðu sinni. Að því loknu kom norsk-íslenski drengurinn Kristþór Viljar Danson, fjögurra og hálfs árs og tendraði ljósin á Oslóartrénu.
Jólasveinarnir Bjúgnakrækir og Askasleikir stálust í bæinn til að syngja og skemmta kátum krökkum. En fyrsti jólasveinninn, Stekkjastaur, kemur til byggða 11. desember og þeir minntu börnin á að vera nú prúð og þæg svo þau fengju eitthvað gott í skóinn.
Gleðilega aðventu!