Innköllun á Villisveppasúpu frá Sælkerabúðinni

Heilbrigðiseftirlit

Villisveppasúpa frá Sælkerabúðinni
Villisveppasúpa frá Sælkerabúðinni

Sælkerabúðin, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum Villisveppasúpu í 1 lítra glerkrukkum.

Ástæða innköllunar:

Ástæða innköllunar er að neytandi fann glerbrot í vörunni.

Hver er hættan?

Hætta er á aðskotahlut (glerbrot) í vörunni.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Sælkerabúðin

Vöruheiti: Villisveppasúpa

Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 14.03.2024

Nettómagn: 1 L

Framleiðandi: Sælkerabúðin, Bitruháls 2, 110 Reykjavik.

Framleiðsluland: Ísland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Sælkerabúðin Bitruhálsi 2 110 Reykjavík.

Dreifing:

Sælkerabúðin, Bitruhálsi 2, 110 Reykjavík.

Leiðbeiningar til neytenda:

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og skila henni í Sælkerabúðina við Bitruháls 2 gegn endurgreiðslu eða farga.

Nánari upplýsingar um innköllun:

Nánari upplýsingar veitir Sælkerabúðin í síma 578-2255 eða í gegnum netfangið info[hja]saelkerabudin.is.