Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum Orkublöndu, blanda af jarðhnetum, rúsínum, kasjúhnetum og möndlum í hýði, vörumerki Krónan.
Ástæða innköllunar:
Aðskotahlutur (hart plast) fannst í pakkaðri vöru.
Hver er hættan?
Matvæli sem innihalda aðskotahluti geta verið óörugg og óhæf til neyslu.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Krónan
Vöruheiti: Orkublanda – blanda af jarðhnetum, rúsínum, kasjúhnetum og möndlum í hýði
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 29.09.2023
Strikamerki: 5690595095663
Framleiðandi: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík
Framleiðsluland: Ísland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
Dreifing:
Verslanir Krónunnar um land allt.
Leiðbeiningar til neytenda:
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni hjá Nathan & Olsen, Klettagörðum 19.
Nánari upplýsingar um innköllun:
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Nathan & Olsen í síma 869 5358 eða í gegnum netfangið snorri.birgisson[hja]1912.is.