Innköllun á Heima súkkulaðibitakökum

Heima Súkkulaðibitakökur

Aðföng, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hafa innkallað frá neytendum Súkkulaðibitakökur, vörumerki Heima.

Ástæða innköllunar er að aðskotahlutur (vír) fannst í einni köku.

Hver er hættan? Matvæli sem innihalda aðskotahluti geta verið óörugg og óhæf til neyslu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Heima

Vöruheiti: Súkkulaðibitakökur

Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 19-01-2024

Nettómagn: 650 g

Strikamerki: 5690350055468

Framleiðsluland: Ísland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir Bónuss og Hagkaupa um land allt.

Leiðbeiningar til neytenda: Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar um innköllun: Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori[hja]adfong.is.