Hvernig lítur draumasafnið þitt út?
Langar þig að taka þátt í vinnustofu um umbreytingu Borgarbókasafnsins í Grófinni þar sem rýna á í staðsetningar og útstillingar á safnefni?
JVST arkitektateymið, sem fór með sigur af hólmi í samkeppni um umbreytingu á núverandi húsnæði safnsins, vinnur nú að því að fullhanna húsið í nánu samtali og samvinnu við notendur, starfsfólk og hagaðila.
Fimmtudaginn 2. mars verður boðið upp á vinnustofu fyrir almenna þátttakendur þar sem rætt verður um staðsetningu safnefnis í húsinu, merkingar, útstillingar, sýnileika, deildir, flokka, flæði, framsetningu og margt fleira sem snýr að safnkostinum. Vinnustofan fer fram í Borgarbókasafninu Grófinni, frá klukkan 9-12, og fá þátttakendur greidda þóknun fyrir sitt framlag.
Áhugasöm hafi samband með því að senda póst á netfangið barbara.gudnadottir@reykjavik.is. Fjöldi þátttakenda í hverri vinnustofu er takmarkaður og því verður valið úr hópi umsækjenda.