Hverfiskjarni í Selás styrktur með uppbyggingu
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti í vikunni að auglýsa breytingar á hverfisskipulagi í Árbæ vegna lóðar númer 98 við Selásbraut. Með uppbyggingunni á lóðinni er verið að styrkja verulega þennan mikilvæga hverfiskjarna í Seláshverfi.
Nauðsynlegt er að gera breytingu á hverfisskipulagi þar sem verið er að stækka lóðina. Það er gert til að koma fyrir 28 bílastæðum, þar af þremur fyrir hreyfihamlaða og aðstöðu fyrir djúpgáma. Gerð er krafa um að gróður umlyki stæðin, sem er í takt við grænt svæði þarna í kring.
Á lóðinni verða 25 íbúðir, verslunar- og þjónusturými á jarðhæð en einnig verður torg við aðkomu að hverfiskjarnanum. Með þessu fyrirkomulagi með verslun og þjónustu á jarðhæð og íbúðir á efri hæðum er hægt að skapa lífvænlegan og skemmtilegan hverfiskjarna.
Meðfylgjandi myndir tala sínu máli en hönnun er í höndum Plúsarkitekta.
Tillögunni hefur verið vísað til borgarráðs.