Hvað nú? Velkomin á HönnunarMars 2023

Frá setningu Hönnunarmars 2022

Hvað er að gerast núna? Hvað tekur við? Hvað ber framtíðin í skauti sér? HönnunarMars er boðberi nýrra hugmynda, innblásturs, skapandi lausna og bjartsýni þar sem  framsækin hönnun og nýjungar leiða saman sýnendur og gesti. Hátíðin verður formlega sett í Hörpu á morgun 3. maí.

Í ár munu 100 sýningar, 400 þátttakendur og 100 viðburðir endurspegla það sem efst er á baugi á sviði hönnunar og arkitektúrs, veita innsýn inn í nýjar lausnir og hugmyndir og sýna nýjar leiðir til að takast á við áskoranir samtímans til innblásturs fyrir þátttakendur og gesti.

Skapandi tilraunir, endurvinnsla, nýsköpun, endurnýting, verðmætasköpun og leikur eru rauður þráður í dagskránni þar sem ólíkar hönnunargreinar á borð við arkitektúr, grafíska hönnun, fatahönnun, vöruhönnun og stafræna hönnun varpa ljósi á þá miklu grósku sem á sér stað í hönnun hér á landi.

HönnunarMars fer fram í upphafi sumars, 3.-7. maí undir yfirskriftinni „Hvað nú?” Viðburðurinn er ein af borgarhátíðum Reykjavíkurborgar og framleidd af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Hátíðin er haldin í 15 sinn í ár en hún hefur farið fram árlega frá 2009.

Opnunarhóf HönnunarMars er miðvikudaginn 3. maí í Hörpu kl. 17:00 þar sem Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs setja hátíðina með formlegum hætti.

Öll velkomin!