Höfuðborgarsvæðið markaðssett sem einn áfangastaður
Í dag, 3. apríl 2023 var Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð eftir 2ja ára undirbúning.
Markaðsstofan verður áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt og eru stofnaðilar Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Markaðsstofan verður vettvangur til að markaðsetja og þróa áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið í heild og ná þannig betri árangri.
Regína Ásvaldsdóttir formaður stjórnar SSH:
„Undanfarin tvö ár hafa SSH unnið ötullega með ferðaþjónustunni að því að greina með hvaða hætti uppbyggingu og markaðssetningu ferðaþjónustu verði best háttað á höfuðborgarsvæðinu. Með stofnun Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er stigið mikilvægt skref í að tryggja samræmdar aðgerðir sem tengjast ferðaþjónustu á sviði markaðsmála og þróun áfangastaðarins. Með tilkomu stofunnar verður til öflugt samstarf sem mun efla samkeppnishæfni áfangastaðarins, ferðaþjónustunni og höfuðborgarsvæðinu til heilla“.
Þórir Garðarsson formaður Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins:
„Ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hafa lengi kallað eftir því að stofnuð yrði markaðsstofa á höfuðborgarsvæðinu. Með þessu er kominn vettvangur fyrir fyrirtæki til að hafa með beinum hætti áhrif á hvernig markaðssetning og þróun ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu muni verða á næstu árum. Er óhætt að segja að þetta er eitt stærsta framfaraskrefið í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu“.
Þórdís Lóa er formaður stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins:
„Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa unnið að ferðamálum bæði sitt í hverju lagi og saman en nú er komið að því að bjóða öllum hagaðilum að taka þátt í verkefninu og um það snýst Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins. Nú förum við í það að þróa, móta og efla samstarf og samlegð um málefni ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu milli sveitarfélaga, atvinnulífs og stjórnvalda, þannig að allar raddir og áherslur komi fram, verkefninu til heilla”.
Björn H. Reynisson, verkefnastjóri áfangastaðarins höfuðborgarsvæðisins:
„Í áfangastaðaáætlun er sett fram stefna og áherslur fyrir áfangastaðinn til næstu þriggja ára. Er þar meðal annars tekið fram hvaða aðgerðir tengdar ferðaþjónustu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ætla að framkvæma og þannig geta allir unnið í takt. Þetta er í fyrsta sinn sem áfangastaðaáætlun er gerð fyrir höfuðborgarsvæðið og því ber að fagna“.
- Upplýsingar um Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins