Hjólabrettagarðurinn á Miðbakka verður sem nýr
Nú stendur yfir viðgerð á hjólabrettagarðinum á Miðbakka og verður hann sem nýr þegar framkvæmdum lýkur.
Hjólabrettagarðurinn var fyrst tekinn í notkun sumarið 2020 en hann er hannaður af Eika Helgasyni, sem er atvinnumaður á snjóbretti og hefur haft hjólabrettið sem áhugamál og lífsstíl frá því seint á tíunda áratuginum
Eiki vinnur nú að því að taka allar plötur af brautunum sem hafa orðið fyrir skemmdum og setja nýjar í staðinn. Þá verður málað og býst hann við að þetta verði eins og nýtt að viðgerð lokinni.
Eiki stendur í þessu einn en sá sem hefur hvað mest hjálpað honum er bróðir hans, Halldór Helgason, sem er líka brettagoðsögn.
Eiki segir að á meðan hann hafi verið við vinnu sína á Miðbakkanum síðustu daga hafi margir þurft frá að hverfa. „Þetta er fjórða sumarið sem við erum með hjólabrettagarðinn, en það þarf að halda þessu við svo þetta sé í lagi. Ég þurfti að loka til að geta annast viðgerðina, og það hafa margir skeitarar komið til að renna sér en orðið frá að hverfa. Þetta verður eins og nýtt þegar ég klára, ég lofa.“ segir Eiki glaður í bragði.
Allir mæta til að hafa gaman. Þetta er lífsstíll. Það eru engar landsliðstreyjur í þessu sporti. Þú ert bara þú sjálfur.
Hann segir svæðið bjóða upp á fjölmarga möguleika og allir ættu að geta rennt sér sem vilja. Eiki segir hjólabrettaiðkun vera meiri list heldur en íþrótt. „Allir mæta til að hafa gaman. Þetta er lífsstíll. Það eru engar landsliðstreyjur í þessu sporti. Þú ert bara þú sjálfur.“
Hann býst við að geta opnað hjólabrettagarðinn á fimmtudaginn kemur þann 20. júlí. Skeitarar geta því farið að hlakka til.