Heitavatnslaust í Breiðholti frá kl. 22 miðvikudaginn 8. nóvember

Hólarnir í Efra- Breiðholti í sólarupprás.

Vegna nauðsynlegrar viðgerðar á Suðuræð verður heitavatnslaust í Breiðholti, Garðabæ, Álftanesi, Hafnarfirði og Kópavogi frá kl. 22 miðvikudaginn 8. nóvember. Stefnt er að því að heitu vatni verði aftur hleypt á um fimm tímum síðar og búist er við að fullur þrýstingur verði kominn aftur á hjá öllum íbúum á svæðinu um kl. 7, fimmtudagsmorguninn 9. nóvember.

Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.

Gott er að hafa glugga lokaða á þessum tíma til að halda varmanum inni. Eins er húseigendum bent á að huga að innanhússkerfum. Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi eftir lokun er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst. Upplýst verður um gang mála á síðu Veitna.