Heilbrigðiseftirlitið innkallar ávöxtinn Langsat bón bon frá Víetnam
Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að höfðu samráði við Dai Phat Trading Inc. ehf hefur innkallað frá neytendum ávöxtinn Langsat bón bón frá Víetnam.
Ástæða innköllunar:
Varnarefnaleifar (Carbaryl) greindust yfir mörkum í vörunni skv. reglugerð 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.
Hver er hættan?
Getur haft neikvæð heilsufarsleg áhrif.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Langsat bón bón.
Lotunúmer: Allar lotur
Innflytjandi: Dai Phat Trading ehf., Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
Framleiðandi: Thien Kim Trading Co.,Ltd
Framleiðsluland: Vietnam
Dreifing:
Asian Supermarket, Faxafeni 14
Leiðbeiningar til neytenda:
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga.
Nánari upplýsingar um innköllun veita starfsmenn Asian Supermarket, Faxafeni 14 og/eða í síma 578-3889