Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallar Organic Pancake Mix frá Amisa
Heilbrigðiseftirlit
Heilsa ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Organic Pancake Mix frá Amisa.
Ástæða innköllunar:
Aðskotaefni, svokölluð trópanbeiskjuefni (atrópín og skópalamín), hafa greinst yfir mörkum sem skilgreind eru í reglugerð. Trópanbeiskjuefni finnast náttúrulega í ákveðnum tegundum plantna.
Hver er hættan?
Matvæli sem innihalda magn trópanbeiskjuefna yfir mörkum eru ekki örugg til neyslu og geta verið heilsuspillandi.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Amisa
Vöruheiti: Organic Pancake Mix
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 30.08.2023
Lotunúmer: 229597
Nettómagn: 2*180 g
Strikamerki: 5032722313743
Framleiðandi: Windmill Organics Ltd.
Framleiðsluland: Þýskaland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík.
Dreifing:
Fjarðarkaup, Melabúðin, Heilsuhúsið Kringlunni, verslanir Samkaupa: Nettó og Kjörbúðin (Siglufirði og Djúpavogi).
Leiðbeiningar til neytenda:
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila til verslunarinnar þar sem hún var keypt.
Nánari upplýsingar um innköllun:
Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Heilsa ehf. í síma 533 3232 eða í gegnum netfangið heilsa[hja]heilsa.is.