Hafa styrkst í hlutverki sínu sem foreldrar með þátttöku í Ellu
Tilraunaverkefnið Ella, sem gengur út á að ungir einhleypir foreldrar fái félagslegan stuðning og ráðgjöf á vettvangi í öruggu félagslegu húsnæði, hefur gefið góða raun. Þjónustukönnun sem framkvæmd var á meðal íbúa sýnir meðal annars að þátttakendur hafa styrkst í foreldrahlutverkinu og eru heilt yfir ánægðir með Ellu.
Á fundi velferðarráðs þann 20. ágúst árið 2020 var samþykkt að úthluta tíu íbúðum í félagslegu húsnæði til ungra einhleypra foreldra á aldrinum 18-29 ára sem bjuggu við langvarandi félagslegan vanda. Tilgangur þess er fyrst og fremst að veita foreldrunum viðeigandi stuðning, fræðslu og ráðgjöf sem stuðlar að aukinni virkni og þátttöku þeirra í samfélaginu.
Frá upphafi hafa 20 foreldrar með 23 börn tekið þátt í verkefninu. Í dag heyra 13 íbúðir undir Ellu, tíu í sama fjölbýlishúsinu og þrjár íbúðir í næsta nágrenni við það. Í fjölbýlishúsinu er jafnframt skrifstofa starfsfólks, þangað sem íxbúar geta leitað eftir stuðningi. Íbúar geta jafnframt bókað viðtal sem fer ýmist fram í íbúð þeirra eða á skrifstofunni. Þannig hafa þátttakendur í Ellu greiðan aðgang að ráðgjöfum. Þeir fá félagslega ráðgjöf, uppeldisráðgjöf, aðstoð við tengslamyndun, stuðning við að stunda virkni og við að halda daglegri rútínu, félagsfærniþjálfun og fleira, allt eftir þörfum hvers og eins.
Verkefnið var kynnt á fundi velferðarráðs á dögunum. Þar voru jafnframt kynntar niðurstöður nýrrar þjónustukönnunar sem gerð var meðal þátttakenda í Ellu og lagt fram minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs, þar sem vikið er að mikilvægi þess að úrræðið fari af því stigi að vera tilraunaverkefni yfir í að vera varanlegt.
Allir þátttakendur setja sér markmið og fá aðstoð við að fylgja þeim
Þegar verkefnið var sett af stað árið 2020 var tekin ákvörðun um að kanna hug þátttakenda með reglubundnum hætti. Þannig var könnun lögð fyrir foreldrana sem hófu búsetu árið 2020 og önnur könnun lögð fyrir sama hóp í árslok 2021. Í sumar framkvæmdi teymi árangurs- og gæðamats á velferðarsviði svo þjónustukönnun í gegnum síma. Sumir foreldranna sem svöruðu könnuninni bjuggu enn í húsinu en aðrir voru útskrifaðir úr verkefninu, þegar sú könnun var gerð.
Í könnuninni má meðal annars lesa um þau markmið sem foreldrar hafa sett sér, en það skuldbinda allir foreldrar sem taka þátt í Ellu sig til að gera í gegnum einstaklingsáætlun. Sem dæmi um markmið sem foreldrarnir settu sér voru að kaupa sér íbúð og verða leikskólakennari, komast út á vinnumarkaðinn, vinna með félagsfærnina og verða öruggari í foreldrahlutverkinu.
Allir svarendur sögðu viðmót starfsfólks vingjarnlegt
Niðurstöður könnunarinnar sýna að foreldrarnir hafa styrkst í foreldrahlutverkinu og sögðu þeir þátttöku hafa auðveldað þeim aðgengi að stuðningi og þjónustu fyrir börnin þeirra. 67% sögðust alltaf hafa fengið þann félagslega stuðning sem þeir þurftu og 88% sögðust að öllu eða einhverju leyti hafa fengið þann uppeldisstuðning sem þeir þurftu á að halda.
Allir svarendur sögðust upplifa vingjarnlegt viðmót ráðgjafa Ellu og 89% upplifðu að ráðgjafarnir hlustuðu á sig og töldu sig mæta skilningi þeirra. Þá hafði búseta og þáttaka í Ellu jákvæð áhrif á sjálfsmynd, andlega líðan og daglegt líf. Aðeins 44% töldu hins vegar verkefnið hafa haft jákvæð áhrif á félagslega virkni, til dæmis við að eignast vini.
Heilt yfir voru allir þátttakendur ánægðir með Ellu og sögðu mjög eða frekar líklegt að þeir myndu mæla með henni við aðra.
Til að kanna möguleika á þátttöku í Ellu er best að bóka símtal hjá ráðgjafa.